Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 48

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Síða 48
48 virðulegt fyrir búskap bænda, er að koma upp bún- aðarstofnun í næsta nágrenni Reykjavíkur, þar sem saman fari tilraunabú, rannsóknir og kennsla, og verði þar sameinað í byggingum og öðru á staðnum, starf- semi Búnaðardeildar, sem nú er í Reykjavík, og fram- haldsdeildar þeirrar, sem nú er á Hvanneyri. Heppilegasti staður fyrir þessa stofnun, er í landi Arnarness í Garðahreppi, á landi er jaðrar að nokkru leyti við Vífilsstaðaland. Er sá staður glæsilegur um allt, svo sem bezt getur verið í nágrenni Reykjavíkur. 4. „Urræði“ og tillaga, sem ekki má verða að veruleika, sökum þess, að það er í alla staði óheppilegt og van- sæmandi fyrir landbúnaðinn og bændur, er að flytja Framhaldsdeildina frá Hvanneyri til Reykjavíkur, sameina hana Búnaðardeildinni til húsa innan núver- andi þéttbýlis í Reykjavík, en búa tilraunum þessarar stofnunar sama stað á lítilli landspildu utan borgarinn- ar, án verulegra bygginga á staðnum og án búsetu þar. Slík húsmennsku-aðstaða við tilraunir á vegum bún- aðarstofnunar verður aldrei annað en lágkúruskapur og of lítils virði fyrir málefni bænda og búskapar. Janúar 1957. *

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.