Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 56

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 56
56 stemma stigu við útbreiðslu fjárpesta, þar sem fénu er hald- ið innan girðinga á hverjum bæ, en gengur ekki allt saman um heilar sveitir. í því sambandi vil ég benda á, að sáning vetrarrúgs til beitar hefur gefizt vel hér. Ef honum er sáð snemma í ágúst, gefur hann góða haustbeit, og hann sprettur til vorbeitar talsvert á undan þeim grastegundum, sem ég þekki, nema einni tegund hveitigrass, sem er álíka snemma á ferðinni. En eins verður að gæta, ef beitarféð heldur ekki vexti hans niðri meðan gróðurinn er sem örastur, verður að skipta um beitiland, og beita nautgripum um tíma í rúginn, svo að engin hætta verði á. að hann hlaupi í legg. Á ferðum mínum heima tók ég eftir því, að fíflar valda víða allmiklu tjóni í ræktuðu landi. Nú er komið úðalyf á markaðinn hér, sem eyðileggur fíflana, en veldur engu tjóni á grasvexti. Til eru tæki til úðunar, sem bæði eru fljótvirk og ódýr. — Annars tíðkast hér mikið að nota litlar flugvélar til að úða með land til eyðingar illgresis, þar sem um víð- áttumikil svæði er að ræða. Hins vegar er mér ekki kunnugt, hvort enn eru til úðalyf sem eyða arfa úr matjurtagörðum.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.