Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 61

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1957, Page 61
61 Engn ástæða ei að ætla, að bændur þessara byggðalaga séu í eðli sínu minni framkvæmdamenn og lélegri bændur heldur en gerist og gengur. Ég held að það, sem fyrst og fremst veldur þessu, séu ófullnægjandi samgöngur frá þessum byggðalögum og innan þeirra og léleg markaðsaðstaða. Það er þennan aðstöðumun, sem þjóðfélagið fyrst og fremst þarf að jafna, og sé það ekki gert stoðar lítið eða ekkert að ýta undir bændur á þessum svæðum að auka túnræktina upp í 10 ha. í raun og vera er öll fjárfesting á þessum stöðum óviturleg, meðan þeim grundvallaratriðum, sem eiga að gera fjárfestinguna arð- vænlega, er ekki kippt í lag. Þetta held ég að ráðamenn þjóðfélagsins verði að reyna að gera sér ljóst og hætta að einblína á þá meinloku, að orsökin til þessa lélega búnaðar- ástands í sumum byggðum landsins sé sú, að mörg býli þar hafa ekki 10 ha tún. Það sorglega er, að þótt öllum hugsandi mönnum mætti vera þetta ljóst, þá kjósa margir heldur gagnslítið kák held- ur en raunhæfar aðgerðir, kjósa heldur nokkurra króna styrk í eigin vasa, heldur en bætta aðstöðu til lífsbjargar, og satt að segja held ég, að þar sem ástandið er verst, geri fólkið sér enga ljósa grcin fyrir hvað góðar samgöngur eru og hvaða þýðingu þær hafa fyrir atvinnulífið, afkomuna og alhliða menningu. Næst þegar ráðamenn þjóðfélagsins finna hvöt hjá sér til að rétta hag þeirra byggðalaga eða sveita, er dregist hafa aft- ur úr í ræktunar- og framleiðslumálum, þá held ég að þeir ættu fyrst og fremst að leggja fyrir sig þá spurningu og reyna að finna svar við henni: Hvernig er hægt að bæta samgöngur og aðstöðu þessara byggða til markaðar? En hætta að ein- blína á 10 ha túnstærðina, sem eitthvert heilagt takmark, því að túnin stækka vaflaust af sjálfu sér, þar sem aukning þeirra er þörf, þegar hitt er fengið.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.