Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Side 2

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Side 2
2 af ykkur, aldamótakynslóðinni, sem ráðið hefur ferðinni liðna áratugi, megi sjá götuna fram undan skýrar en áður, er þeir hugsa um umtalsefni mitt í dag. Þegar undan eru tek- in túnin á Akureyri, Siglufirði og Ólafsfirði, sem ekki heyra Eyja- fjarðarsýslu til nú, þá voru túnin í Eyjafirði fyrir um 50 árum nálægt 1600 hektarar að stærð. Mikið af þeim var þýft, en síðan um aldamót hafa þau svo til öll verið sléttuð, eða um 1570 ha. Fyrir hálfri öld voru þau vel flest ógirt, nú munu þau flest eða ef til vill öll vera girt, og allmörg þeirra eru nú hólfuð í sundur, enda er slíkt nauðsynlegt, þegar ætlunin er að beita þau, og hafa þeirra full not. Og jafnframt því sem þið hafið sléttað og girt gömlu túnin hafið þið árlega bætt við þau, brotið nýtt og nýtt land utan túns, aukið við þau 3900 ha, svo nú eru túnin orðin yfir 5500 ha að stærð. Þið áttuð líka því láni að fagna, að meðal ykkar starfaði Ræktunarfélag Norðurlands, en fyrir starf þess var fyrst byrjað að rækta upp tún með gras- fræsáningu, og fyrsti tilbúni áburðurinn, sem til landsins fluttist og nokkuð var notaður af bændum, var fyrir til verknað þess fluttur til Akureyrar og notaður af eyfirzkum bændum. Eyrir hálfri öld, fengust liðugir 50.000 hestar af túnunum, en nú fást af þeim um 250.000 hestar eða 5 sinn- Páll Zóphóniasson.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.