Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Side 9

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Side 9
staklinga, og notaðan eftir þeirra geðþótta. Heppnast ykk- ur, næstu kynslóð, að vinna með guði almáttugum að því að skapa? Haldið þið aðeins við, eða spillið þið því, sem þið takið við? Það fer mikið eftir því hvaða lífssjónarmið þið mótið í sái ykkar. Maðurinn lifir ekki af einu saman brauði. Hann mótast í hugsun og starfi af sínu umhverfi. Hann lifir í tengsfum við aðra þjóðfélagsþegna og í þeirn öllum iifir guðsneistinn, því í mynd guðs almáttugs erum við allir skapaðir. Og eftir því hve vel okkur tekst að þroska og glæða guðsneistann í okkur og okkar samverkamönnum, fer það hvernig við störfum. Þegar Ingólfur Arnarson hafði landsýn kastaði liann öndvegissúlum sínum fyrir borð og bað þess sína guði, að þeir létu þær reka þar á land, sem honum væri hagkvæmast að búa. Eins og þið vitið kom hann að landi við Ingólfshöfða, en þar voru ekki súlurnar, en svo sannfærður var Ingóffur um handleiðslu guðanna, að hann leitaði í þrjú ár meðfram endilangri strönd landsins, þar til hann fann þær í Reykjavík. Hann treysti sínum guð- um. Við vitum, að við erum skapaðir í guðsmynd. Við vit- um að guðsneistinn er í okkur öllum. En leitum við hans? Reynum við að finna hann og glæða í brjóstuin annarra? Ég veit það ekki, en ég veit með vissu, að ef við leitum hans eins trúlega og Ingólfur leitaði að súlunum, þá tekst okkur líka að finna hann og láta hann stjórna gerðum okkar og breytni. Þess vegna er það beiðni mín til ykkar Eyfirðingar, að þið leitið hans. Gerið þið það er víst, að þið finnið hann, því sá finnur er leitar af einlægni og festu, og þá veit ég líka fyrir víst, að þið verðið framvegis samverka- menn guðs við að skapa, haldið áfram starfi aldamótakyn- sfóðarinnar við að bæta lífsskilyrðin á jörðu hér og göfga og fullkomna guðsneistann í ykkur sjálfum og samborgur- um ykkar. Þá gangið þið áfram til gagns götuna frameftir veg næstu hálfu öldina, og Eyjafjörður fríkkar og batnar með hverju árinu sem líður.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.