Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 19

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 19
19 á einstrengingshætti og þvergirðingsskap. Má í því sam- bandi nefna næsta ósanngjörn gjöld a£ rafhreyflum og þó einkum súgþurrkunarhreyflum, sem aðeins eru notaðir skamma hríð um hásumarið og svo það, að á sama tíma er raforka til býla skorin svo mjög við nögl, að á býlum með stóra súgþurrkunarblásara er hún alveg ófullnægjandi. Súg- þurrkunin er þýðingarmeira atriði hér en í flestum öðrum löndum, og orkuþörf landbúnaðarins því hlutfallslega meiri hér um hásumarið en víðast hvar annars staðar, en geta rafveitnanna til að fullnægja þörfinni líka mest þá. Á þessu kunna að vera einhverjir tæknilegir örðugleikar, og þá þarf að reyna að leysa. Þeir, sem búa í skjóli kaupstaða og þorpa geta valið sína súgþurrkara eftir vild og hlöðustærð og fengið næga raforku til að drífa þá, þetta vilja aðrir bænd- ur einnig geta. Þótt véltæknin sé góð og nauðsynleg íslenzkum landbún- aði er ekki hægt að neita því, að hún hefur sínar öfgar og alltof langt hefur verið gengið í því að hverfa algerlega frá notkun hesta og hestatækja. Við sum létt störf svo sem marga daglega flutninga á býlunum, rakstur á dreif, jafnvel dreifingu tilbúins áburðar, illgresisherfingu, hreykingu og m. fl. hentar hestur og hestatæki betur eða eins vel og dráttarvélar og véltæki og engin hagsýni er í því að binda dráttarvélar við slík störf, þegar nóg önnur verkefni bíða þeirra. Fullnýting afurðaheefni búfjárins. Alveg eins og við keppum að því í jarðræktinni að fá sem mesta uppskeru af hverri flatareiningu ber að keppa að því, að búfénaðurinn gefi sem mestar afurðir. Hlutverk búfjár- ræktarinnar er að breyta fóðri í fæðu, og því afkastameiri sem hver einstaklingur hjarðarinnar er við þetta breytingar- starf því betra. Áður en búfénaðurinn getur farið að fram- leiða afurðir þarf þörfum hans til vaxtar og viðhalds að vera 2*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.