Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Síða 24
24
hvað erfiðast að ná haugnum úr hauggeymslunum. Leitað
er ýmissa ráða til þess, svo sem að nota snigla og færibönd
til þess að flytja huginn á ökutækin, en þær tiifæringar vilja
endast misjafnlega. Lang hagkvæmast er að moka áburðin-
um með moksturstækjum á dráttarvél, þar sem þeim verð-
ur auðveldlega við komið, en það gengur bezt í haganlega
gerðum, opnum haugstæðum. Af ýmsum ástæðum eru opin
haugstæði iítið notuð hér en mikið til af áburðarkjöllurum,
þar sem erfitt er að koma moksturstækjum við. Oft mætti
þó hafa þeirra mikil not á slíkum stöðum, ef gólfum kjali-
aranna hallaði til dyra og gerð væru dálítil opin haugstæði
utan dyra, er mykjan gæti runnið fram í þegar dyrnar eru
opnaðar, en vegna þess, hve lítið er borið hér í ftóra, renn-
ur mykjan auðveldlega ef halii er einhver. í þessum haug-
stæðum mætti koma við ámoksturstækjum, auk þess, sem
þau yrði til verulegra þrifa og öryggis, því það er alþekkt,
að mykjan sprengir oft upp hurðir áburðarkjailaranna og
rennur þá langa vegu út um túnin bæði til skemmda og
leiðinda. Þessa gætu dálítil, steypt haugstæði utan dyranna
varnað.
Afstaða heystæða og gripahúsa þarf að vera þannig, að
flutningur fóðursins sé sem minnstur og auðveldastur. Eink-
um skiptir þetta miklu máli fyrir vothey, sem er þungt og
því erfitt í flutningi, þarf að vera hægt að moka því beint
úr geymslunum niður í vagn, er flytur það rakleitt inn í
fóðurgangana, er verða að vera nægilega rúmir. Sama gildir
um þurrheyshlöður, og þær mega um fram allt ekki vera
meir niðurgrafnar en að auðvelt sé að aka heyinu úr þeim
fram í gripahúsin.
Á hverju býli þarf að vera afmarkað athafnasvæði á hag-
kvæmum stað, þar sem vélar og verkfæri eru geymd að
sumrinu þegar þau ekki eru í notkun, og þar, sem minni
háttar viðgerðir á þeim geta farið fram. Ef verkfærageymsla
er á býlinu á þetta svæði vitanlega að vera í tengslum við