Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 35

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 35
35 y4 af því landi, sem þegar er gróðursett í. Sumt af því er niður undir firðinum. Taka síðan gróðursetningarfletirnir við hver af öðrum út eftir hlíðinni í 30—80 m hæð yfir sjávarmál. Hlíðinni hallar á móti norðaustri. Botngróður- inn í birkiskóginum er bláberjalyng, aðalbláberjalyng, blá- gresi, sumstaðar nokkuð af skógarmosa, gras mjög sjaldgæft, en burknar all algengir og einnig einir. Fyrir 10 árum var mældur upp 33 ára gamall rauðgreni- teigur. Meðalvöxturinn var 3.5 m3 á ha, og síðustu 5 árin 8.5 m3 á ha til jafnaðar á ári. Flæðin var frá 5—11.5 m, og þvermálið 6—20 cm. Arssprotinn það ár var til jafnaðar 30 cm. í 18 ára aldursflokki var hæðin 3 m að meðaltali, og hæðarvöxturinn síðustu 3 árin 35 cm árlega til jafnaðar. Elztu plöntuteigarnir hafa þrisvar sinnum borið ríkulegt fræ. Ekki er héðan haldið án þess að renna huganum út í Úlfsey. Þar var hafið gróðursetningarstarfið 1917, er Thor- vald, Giœver var frumkvöðull að. í þá landareign er nú búið að gróðursetja í 26 ha um þessar mundir, og er sagt, að greninu fari ágætlega fram. Núverandi fylkisskógameistari í Troms skrifaði fyrir nokkrum árum: „Thorvald Giæver hefur með óvenjuleg- um dugnaði og bjartsýni hrundið í framkvæmd gióðursetn- ingu í landareign sinni. Fyrir utan sína eigin ágætlega heppnuðu gróðursetningu hefur hann lagt lið gróðursetn- ingu hjá ýmsum í nágrenninu, er mun hvað af hverju fara að gefa arð.“ Það var gaman að fá tækifæri til að skoða skógana í döl- unum inn af Málselvdal, en við erum hér í Vesturdal á Forsetmóein, 250 m yfir sjávarmál, í hlíðunum fyrir ofan veginn til Narvíkur. Við erum að skoða rauðgrenið, sem hefir verið gróðursett á undanförnum árum. F.lzti teigurinn er 19 ára. Meðalhæð trjánna er 21/á m, og hæðarvöxturinn á ári síðustu 4 árin er 30 cm. s*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.