Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 36

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Page 36
36 Jarðvegurinn er góður, þó kvað hann innihalda enn meira af aðgengilegum næringarefnum fyrir grenið í brekk- unum í birkiskóginum vestan við ána. I dölunum inn af Málselv í líkri hæð yfir sjó og fyrrtaldir gróðursetningarteigar, er hitastigið á tímabilinu frá Í860 til Í950 að meðaltali 9.5° C sumarmánuðina júní—sept. Úr- fellið yfir árið er 5—600 mm, en yfir sumarmánuðina maí— sept. 200—250 mm. Júlímánuður getur verið ákaflega heit- ur, en september frekar kaldur. Við komum á marga bæi, sem áttu álitlega skóga og gróð- ursetningarteiga. Á leiðinni til Blábergsskógarins komum við í Leinihallarskóg í Austurdal, er ungmennafélagið hefur komið upp. Hann þekur 20 ha iands. Þar er 30 ára rauð- greni, 5l^ m á hæð að meðaltali. Lindifuran vex þar mjög vel, hún er nú 20 ára gömul. Árssprotar hennar í ár eru 25—40 cm. Fyrir neðan Blábergið eru einhverjar fallegustu fururnar í dölunum, og þar er einnig ákaflega fallegur greniskógur, 60 ára að aldri. Þar er viðarmagnauki grenisins 22 teningsmetrar árlega á ha þessi árin. Á eynni Senju, sem er stór eyja rétt við ströndina, voru gerðar tilraunir með að eyða birkikjarri úr greniteignum með hormónum. Þá gafst okkur tækifæri til að sjá piöntu- teiginn í Suðurhlíð, er íslenzki gróðursetningarflokkurinn gróðursetti 1949. Suðurhlíð er á 69° 20' n. br. og 7° au. 1. Hér er sumar- hitinn ekki eins hár og inni í dölunum, en haustið og fyrri hluti sumars er hlýrri. Seinni tölur yfir meðalhita sýna þó töluvert meiri hækkun á meðalhita sumars úti á eyjunum en inni í landi. Okkur er sagt, að hér séu hvað mestar jarð- ræktarframkvæmdir um þessar mundir. Birkiskógarnir eru mjög víðáttumiklir. Algengasta hæð trjánna er 6—10 m. Einnig eru nokkrir furuskógar, en þeir eru mjög gisnir. Það hefur verið rannsakað, að hnignun furunnar seinasta aldursskeiðið orsakast af háum aldri, sem

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.