Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 49

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 49
Utanfarir og erindi Ég hef ekki gert tíðreist til annarra landa. Síðan ég kom frá prófi 1924 eða í 34 ár hef ég ekki farið utan og má það telja hóflegt nú á öld utanferðanna, þegar flestir málsmet- andi menn telja sig þurfa til útlanda helzt árlega, og fjöldi fólks úr öllum starfsgreinum eyðir sumarleyfum sínum er- lendis, án þess að séð verði, að það eigi þangað önnur erindi. Ekki verður annað sagt, en utanfarir gangi hér langt úr hófi fram, eins og reyndar flest önnur eyðsla og ekki get ég betur séð, en erindisleysur, en svo nefni ég skemmtireisur til útlanda, eigi lítinn rétt á sér. Má ætla að þaulsætni mína heima megi að nokkru rekja til þessara skoðana minna. Ég hafi ekki fundið, að ég ætti neitt brýnt erindi, en hitt mun þó líka hafa ráðið nokkru, að ég hef aldrei talið mig hafa fé eða tíma til slíkrar útsláttarsemi og hef eiginlega aldrei getað skilið hvernig fjölmargir aðrir, sem ekki virtust hafa úr meiru að spila en ég, hafa getað leyft sér slíkan munað. Líklega hefur þó ráðið mestu, að mig hefur aldrei langað ákaft utan, eða hef látið aðrar sterkari langanir sitja í fyrir- rúmi. N ú hef ég þó fallið fyrir freistingunni og er í þann veginn að hefja utanferð, og með tilliti til framanritaðs finnst mér tilhlýðilegt að gera nokkra grein fyrir því, með hverjum hætti þetta hefur orðið og hvers ég vænti mér af ferðalaginu. Er þá skemmst frá því að segja, að af sjálfsdáðum hefði ég líklega aldrei lagt í ferð þessa, svo mjög hefur ferðakostnað- ur vaxið á þessu yfirstandandi ári, en ekki færri en þrjár 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.