Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 53
Aðalfundargerð
Rœktunarfélags Norðurlands 16. júni 195S.
Ár 1958, mánudaginn 16. júní, var aðalfundur Ræktun-
arfélags Norðurlands haldinn í fundarsal stjórnar K.E.A.,
Akureyri. Fundurinn hófst kl. 10.20.
Formaður félagsins, Steindór Steindórsson, setti fundinn
og var kjörinn fundarstjóri.
Ritarar voru tilnefndir Jón G. Guðmann og Helgi
Kristjánsson.
I byrjun fundarins minntist fundarstjóri þriggja látinna
félagsmanna, þeirra Jakobs Karlssonar, Brynleifs Tobiasson-
ar og Baldvins Friðlaugssonar. Risu fundarmenn úr sætum
sínum í þakklætis- og virðingarskyni.
1. Mættir fulltrúar voru:
Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar: Eggert Davíðsson,
Möðruvöllum.
Frá Búnaðarsambandi Skagafjarðar: Gunnlaugur Björns-
son, Brimnesi.
Frá Búnaðarsambandi Austur-Húnvetninga: Guðmundur
Jósafatsson, Austurhlíð.
Frá Búnaðarsambandi Norður-Þingeyinga: Guðni Ingi-
mundarson, Hvoli.
Frá Ævifélagadeild Akureyrar: Ármann Dalmannsson,
Akureyri, Jón G. Guðmann, Skarði, Árni Jónsson, Háteigi,
Karl Arngrímsson, Akureyri, Stefán Stefánsson, Akureyri.
Frá Ævifélagadeild Ongulsstaðahrepps: Helgi Eiríksson,
Þórustöðum.