Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Síða 20
skiptum, þeir staðgreiða vöruna og mun það vera eina land-
búnaðarafurðin sem svo er ástatt með. Verðið var árið 1980 72
þýsk mörk/kg af fyrsta flokks ull en hefur hækkað og er nú 102
mörk/kg. Ull i 5. flokki gefur um 10 mörk/kg. Allt að 90% af
ullinni á að geta farið í 1. flokk. Ullarverð er um 13 fallt á við
ull af sauðfé. Angóraullin er flokkuð og tilbúin til vinnslu frá
okkar hendi. Þegar við lítum á ullarverðið beint finnst okkur
það hátt, en í raun er verið að greiða okkur fyrir miklu meiri
vinnu heldur en bara klippinguna.
KYNBÆTUR
Fyrstu kanínur okkar eru systkinahópur og höfum við æxlað
saman foreldri og afkvæmi samkvæmt vissum reglum, svo-
kallaðri línurækt. Þessi kynbótaaðferð mun ekki notuð við
annað búfé hérlendis, en Þjóðverjar telja sig hafa náð ágætum
árangri með henni og er ullarmagnið sums staðar komið upp í
1,6 kg/dýr/ári. Mjög strangt mat þarf á hverjum ungahóp til
að velja dýr til undaneldis. 1 Þýskalandi verða menn dómarar
að þriggja ára námi loknu, því má segja að við höfum aðeins
hugmynd um hvað beri að skoða og hvernig dýrið á að vera.
Hefur þetta auðvitað háð okkur mjög.
Tveir þættir eru það sem ber fyrst of fremst að skoða, ull og
bygging. Ullarskoðun fer fram þegar dýrið er með þriggja
mánaða ull og er komið að klippingu. Ullin á að vera 5-6 sm
löng, greið og hrein, hæfilegt sambland af rishárum og und-
irhárum. Undirhárin eru aðalmagnið en rishárin eru nauð-
synleg til að halda ullinni greiðri. Án þeirra flóknar ullin. Of
mikið af rishárum gerir ullina grófa, en of lítið gerir hana
flókna. Byggingu á að skoða þegar dýrið situr eðlilega. Best er
að leggja höndina yfir bak dýrsins og finna hversu vel bakið
og tortan fylla upp í lófann. Finnist hnútur þar sem aftur-
fætur koma upp með hrygg, þá er dýrið grófbyggt, auðvitað
mismunandi eftir holdafari. Ýmis séreinkenni svo sem styggð,
sóðaskapur og lafandi eyru ber að varast. Okkar reynsla er sú
að öðrum hvorum unga þurfi að farga, en hingað til höfum
við fyrst og fremst verið með systkinahópa.
22