Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Side 100
Ævifélagadeildin Akureyri:
Björn Þórðarson,
Þorsteinn Davíðsson.
Þá voru einnig mættir stjómarmennirnir Helgi Jónasson og Ævarr
Hjartarson, en þeir hafa fulltrúaréttindi á fundinum.
Auk framantalinna, voru einnig mættir á fundinn ráðunautar
Ræktunarfélagsins, tilraunastjórinn á Möðruvöllum, nautgriparækt-
arráðunautar Búnaðarfélags Islands, allmargir héraðsráðunautar og
formenn eða stjórnarmenn búnaðarsambanda á félagssvæðinu og til
viðbótar nokkrir gestir.
4. Teknar voru fyrir skýrslur ráðunauta og tilraunastjórans á Möðruvöll-
um. Þórarinn Lárusson og Bjarni Guðleifsson skýrðu frá því helsta í
störfum sínum síðastliðið ár og Jóhannes Sigvaldason sagði frá starf-
seminni á Möðruvöllum. Skýrslurnar lágu alíar fyrir fjölritaðar á
fundinum og verða í heild síðar birtar í Ársriti Ræktunarfélags Norð-
urlands.
5. Framkvæmdastjóri félagsins Þórarinn Lárusson las og skýrði reikninga
Ræktunarfélags Norðurlands fyrirárið 1983. Rekstrarreikningur sýndi
tap upp á 19.408 kr., en niðurstöður efnahagsreiknings voru þær, að
eigið fé félagsins í árslok var 487.437 kr.
Þá var orðið gefið laust til umræðna um skýrslur og reikninga, en
enginn kvaddi sér hljóðs. Bar fundarstjóri því reikningana upp til
atkvæða og voru þeir samþykktir samhljóða.
Fundarstjóri gat þess að fulltrúum Búnaðarsambands Austurlands
og Búnaðarsambands Strandamanna hefði verið boðið til fundarins.
Páll Sigbjörnsson ráðunautur er mættur fyrir hönd Austfirðinga, en
Strandamenn sáu sér ekki fært að koma.
í tilefni af 80 ára afmæli Búnaðarsambands Austurlands afhenti
formaður Ræktunarfélagsins Búnaðarsambandinu að gjöf bókina
Berghlaup eftir Ólaf Jónsson. Veitti Páll Sigbjörnsson henni viðtöku.
6. Ólafur E. Stefánsson nautgriparæktarráðunautur Búnaðarfélags Is-
lands flutti erindi um starf sitt við leiðbeiningar og sýningar síðastlið-
inn aldarþriðjung. Nefndi hann í fyrstu brautryðjendastörf Guðjóns
Guðmundssonar og Páls Zóphoníassonar við mótun nautgriparæktar-
innar. Síðar komu svo ýmis nýmæli til, um og eftir 1950, en þá komu
héraðsráðunautar víða til starfa. Við það minnkaði verulega beint
samband ráðunauta Búnaðarfélagsins við bændur. Áður þurftu þeir
t.d. að skipuleggja reglulega nautgripasýningar og kostaði það mikla
vinnu við bréfaskriftir og fleira. Nú eru þær haldnar í samvinnu við
héraðsráðunautana og með allnokkuð öðru formi en áður var. Að
lokum sagði Ólafur nokkrar gamansögur af ferðum sínum á kúasýn-
102