Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1984, Page 101
ingum í gegnum árin og skemmtilegum tilvikum af samskiptum bænda
og ráðunauta.
Helgi Jónasson og Bjarni Guðleifsson báru fram stuttar fyrirspurnir í
gamansömum tón, sem Ólafur svaraði í sömu mynt.
Páll Sigbjörnsson kvaddi sér hljóðs og þakkaði boðið um að sitja
fundinn. Færði hann kveðjur formanns og annarra stjórnarmanna
Búnaðarsambands Austurlands. Sagðist Páll vonast til góðs samstarfs
Austfirðinga við Ræktunarfélag Norðurlands í framtíðinni. Að lokum
þakkaði hann bókagjöfina.
7. Eftirfarandi nefndarskipun fór nú fram:
Fjárhagsnefnd:
Oddur Gunnarsson, Þórarinn Sólmundarson, Björn Þórðarson, Sig-
urjón Tobíasson, Ólafur Vagnsson og Björn Magnússon.
A llsherjamefnd:
Þóranna Björgvinsdóttir, Árni Bjarnason, Jón Sigurðsson, Guð-
mundur Helgi Gunnarsson, Þorsteinn Daviðsson og Grímur B. Jóns-
son.
Félagsmálanefnd:
Jóhannes Torfason, Gunnar Oddsson, Sveinn Jónsson, Ari Teitsson
og Jóhann Helgason.
Heimaöflunarnefnd:
Gísli Pálsson, Sigurður Árnason, Pétur Helgason, Guðmundur
Steindórsson, Stefán Skaftason, Eggert Ólafsson og Jón H. Sigurðsson.
8. Fyrir var nú tekinn dagskrárliðurinn framlagning mála.
Þórarinn Lárusson lagði fram fjárhagsáætlun fyrir árið 1985. Vísað
til fjárhagsnefndar.
Ævarr Hjartarson mælti fyrir tillögu um tengsl hinna ýmsu stofnana
landbúnaðarins. Vísað til fjárhagsnefndar.
Egill Bjarnason kom með nokkrar ábendingar til heimaöflunar-
nefndar. Egill ræddi einnig um samþykktir Ræktunarfélagsins og full-
trúaréttindi á aðalfundi. Jafnframt um hugsanlega stækkun á félags-
svæðinu. Allsherjarnefnd taki mál þessi til umfjöllunar.
Fleiri mál komu ekki fram undir þessum lið og var nú gert fundarhlé
meðan nefndir starfa.
9. Álit nefnda:
Heimaöflunarnefnd lagði fyrst fram sínar tillögur. Framsögumaður
Stefán Skaftason.
Tillaga 1.
„Aðalfundur RN 1984 tekur undir tillögur stjórnar RN, að mjög
brýnt sé að vinna að orkusparnaði i íslenskum landbúnaði. Fundurinn
103