Vísbending - 20.12.2002, Qupperneq 19
VISBENDING
kynnti hann sér meðal annars stjórnlagafræði, rekstrarhagfræði, þjóð-
hagfræði og hagsögu.
Jón Sigurðsson var þá þegar kominn á þá skoðun að mestu varðaði
fyrir Island að verslun þar yrði gefin algerlega frjáls. Allar þjóðir ættu
að geta verslað hvar sem er á Islandi og sem minnsta tolla og aðrar
hömlur ætti að leggja á verslunina. I Hugvekju til Islendinga, frægustu
ritgerð Jóns sem hann skrifaði á byltingarárinu 1848, segir hann:
...það er auðsætt að þegar allur vörutilbúningur [þ. e. fram-
leiðsla] er ætlaður til hagnaðar öðrum, þá er öll verslun það líka
og með henni allir atvinnuvegir, því hún er undirstaða þeirra
allra."
Jón var þeirrar skoðunar að vöruvöndun í einstökum framleiðslu-
greinum væri algerlega háð því að samkeppni ríkti í verslun og að hún
væri frjáls. Á íslandi var hins vegar landlæg andúð á verslun. íslenskir
bændur orðuðu hana við prang og pretti og töldu kaupmenn jafnan sitja
á svikráðum við sig. Það að flestir kaupmenn voru danskir á 19. öld,
kunnu lítið í fslensku og bjuggu yfirleitt í Kaupmannahöfn ýtti undir
þessa andúð. Eftir að heildsalan fluttist til landsins snemma á 20. öld
yfirfærðu margir Islendingar þessa andúð á heildsalana. Nýjar hreyf-
ingar samvinnumanna og jafnaðarmanna ólu á þessari andúð svo að við
lá að þetta yrði almenn skoðun fslendinga iengst af á 20. öld. Enn þann
dag í dag heyrast þau sjónarmið að undirstöðuatvinnuvegirnir séu ein-
göngu landbúnaður og sjávarútvegur og kannski er það viðurkennt með
nokkrum semingi að iðnað megi einnig flokka þannig. Verslun, einkum
heildverslun, var hins vegar álitin milliliðastarfsemi, allt að því óþörf,
sem margir höfðu horn í síðu tii og hafa jafnvel enn. En Jón Sigurðs-
son var annarrar skoðunar enda líberalisti í evrópskum 19. aldar skiln-
ingi.
Kaupmenn andstæðingar
verslunarfrelsis
Þó að andi líberalismans hefði blásið í Danmörku allt frá því um
1785 og meðal annars leitt til afnáms einokunarverslunar á íslandi
var langt í frá að ísland nyti sama réttar og Danir sjálfir í verslunarmál-
um. Verslun á Islandi var enn á því Herrans ári 1840 eingöngu leyfð
þegnurn Danakonungs, ekki mátti flytja vöru með útlendum skipum og
miklar hömlur voru lagðar á verslun utan fastra kaupstaða. Eins og áður
sagði var niðurstaðan sú að danskir kaupmenn voru nær einráðir um
verslunina mestalla 19. öld, líkt og verið hafði á dögum einokunarinn-
ar. Að vísu var nokkur samkeppni þeirra í milli í stærstu kaupstöðun-
um, svo sem í Reykjavík. Erlendum þjóðum var hins vegar ekki leyft
að versla á Islandi og Islendingum sjálfum hafði ekki tekist að hasla sér
völl í verslun í sínu eigin heimalandi svo að nokkru næmi. Dönsku
kaupmennirnir á íslandi óttuðust breytingar á þessu fyrirkomulagi og
snerust gegn breytingum í frjálsræðisátt á fslandi þó að flestir þeirra
teldu að frjáls verslun ætti að gilda sem almenn regla í Danmörku. Þeir
héldu því hins vegar fram að markaðurinn á íslandi væri svo lítill að
verslunin þar þyldi ekki frelsi. Einnig heyrðust þau sjónarmið að versl-
un á íslandi ntundi lenda í höndum útlendinga, ef hún yrði gefin laus,
og að Danmörk fengi þá ekki haldið íslandi til lengdar.
Jón Sigurðsson hafði, 18 ára gamall, staðið einn vetur í verslun R C.
Knudtzons, kaupmanns í Reykjavík, og var því vel kunnugur dönsku
versluninni á fslandi. Knudtzon þessi var einn af umsvifamestu kaup-
mönnum á íslandi og áhrifamaður í Kaupmannahöfn, hann var þing-
rnaður á stéttaþingum, borgarfulltrúi þar og áhrifantaður í félagi stór-
kaupmanna. Hann fyllti flokk nasjónal-líberalista og var því afstaða
hans til verslunar á fslandi lituð af ímynduðum eiginhagsmunum. Vor-
ið 1840 birtist grein eftir íslending í blaðinu Kj0benhavnposten með
E k k e r t
VEFST
fyrir okkur
viö þróum kerfi aö þínum þörfum
Vefur samskiptalausnir ehf var stofnað árið 1997 og
er með framsæknari ráðgjafa- og hugbúnaðar-
fyrirtækjum landsins. Hjá Vef starfa einstaklingar
sérhæfðir I forritun, ráðgjöf og markaðsmálum.
Vefur sérhæfir sig i þróun vef- og samskiptalausna
sem leiða til hagræðingar I rekstri og einfalda
samskipti milli fyrirtækja, viðskiptavina, fjárfesta og
starfsmanna.
Hjá Vef er boðið upp á:
§ come
v/ V E F S T J
Viðhaldskerfi (viöhald á vefsíðum)
FRÉTTABRÉFASTJÓRI
Rafrœn útgáfa á fréttum
outcome
VEFVERSLUN
Verslun á vefnum
(Mutcome
VEFKANNANIR
Rafrœnar kannanir
Hægt er að sníða Outcome kerfi að þörfum hvers
viðskiptavinar. Einnig má tengja kerfin saman.
Kannaöu máliö
www.vefur.is
Suðurlandsbraut 12, 2. hæö
108 Reykjavtk
Simi 533 1440
Netfang vefur@vefur.is
19