Vísbending


Vísbending - 20.12.2002, Síða 34

Vísbending - 20.12.2002, Síða 34
VISBENDING Útkoma blaðsins varð skrykkjóttari en áður vorið 1987 en ekkert blað kom frá 20. maí til 22. júií. Nokkrir kenn- arar við Háskóla íslands undir forystu Þorvaidar Gylfasonar, sem þá var stjórnarformaður Kaupþings, tóku þá að sér að skrifa greinar næstu mánuði. Blaðið breytti um svip og í stað þess að fjalla um erlend viðskipti fór að bera meira á greinum almenns eðlis um viðskipti og hagfræði. Segja má að þetta form hafi haldist fram á þennan dag. Páll R. Pálsson viðskiptafræðing- ur var ritstjóri á þessum tíma, frá maí fram í nóvember árið 1987. Páll starfar nú í hagdeild Landssímans. Finnur Geirsson hagfræðingur tók við ritstjórn Vísbendingar í nóvember árið 1987. Hann hafði þá þegar skap- að sér nafn sem einn af snjallari hag- fræðingum landsins af yngri kynslóð- inni. Hann ritstýrði Vísbendingu fram til loka maí árið 1990. Finnur Geirs- son er framkvæmdastjóri Nóa-Síríus og stjórnarformaður Samtaka at- vinnulífsins. Finnur svaraði fáeinum spurningum um veru sína í ritstjóra- stól Vísbendingar. Hvernig kom til að þú varðst ritstjóri „Vísbendingar"? Ég hafði starfað hjá Verslunarráðinu í tæplega fjögur ár þegar Pétur Blöndal, þáverandi forstjóri Kaupþings, og Þor- valdur Gylfason, þáverandi stjórnarfor- maður, komu að máli við mig og báðu mig að taka við ritstjórn Vísbendingar. Á þeim tíma hafði ég haft nokkra reynslu af greinaskrifum um efnahags- mál þar sem ég skrifaði mánaðarlega greinar í News from Iceland og líkaði vel. Vísbending var þá orðið nokkuð þekkt nafn í viðskiptaheiminum og raunar einstakt á sínu sviði og mér fannst kjörið að slá til og spreyta mig á nýjum vettvangi sem gaf kost á því að hafa umtalsverð áhrif á efnahagsmála- umræðuna. Hvaða málefni risu hœst í viðskipta- og efnahagsumrœðunni á þeim árum? Þetta var árið 1987 og efnahagsum- hverfíð mjög óh'kt því sem nú er. Evr- ópusambandið var á fullu við að gera sameiginlegan markað að veruleika og á þessum tíma var verið að leggja drög að sameiginlegri mynt. ísland var að mörgu leyti afskaplega einangrað og við vorum stöðugt að glíma við miklar sveiflur og vandamál þeim samfara með skamm- tímalausnum. Rauði þráðurinn í skrifum blaðsins var að benda stjórnvöldum á að það þyrfti að gera róttækar skipulags- breytingar í þá veru sem síðar varð í kjölfar samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið. Mér fannst hvað mikilvæg- ast í þessu sambandi að upplýsa menn um þær hræringar sem voru í löndunum umhverfis okkur og t.d. var baksíðan ávallt helguð fréttum af erlendum vett- vangi. Eru þér einhverjar greinar sérstaklega minnisstœðar? Almenn þekking á efnahagsmálum var mun skemmra á veg komin en nú er og fyrsta greinin mín fjallaði um þann út- breidda misskilning að sjávarútvegur stæði á bak við rúmlega 70% af útflutn- ingstekjum. Atvinnugreinum var mis- munað með ýmsum hætti af hálfu hins opinbera og því má halda fram að sú mismunun hafi byggst á grundvallarmis- skilningi um mikilvægi einstakra at- vinnugreina fyrir þjóðarbúið. Ég færði rök fyrir því í umræddri grein að það væri þjóðhagslega hagkvæmt að eyða þessari mismunun og mig minnir að ég hafi klykkt út með því að mæla með þvf að atvinnuvegaráðuneytunum yrði steypt saman í eitt. Mjög hefur dregið úr þessari mismunun sem betur fer og nú- gildandi skipting ráðuneyta því enn ankanna- legri en þá. Fékkstu einhverjar athugasemdir við greinarskrif þín? Á þeim tíma sem ég ritstýrði Vísbend- ingu breyttist ritið úr því að vera tiltölu- lega sérhæft upplýsingarit um t.d. geng- is- og vaxtamál og fjármál fyrirtækja yfir í að vera meira efnahagspólitískt rit. Ég held að það hafi verið þá, eins og ef- laust ennþá, töluvert lesið af þeim sem voru að taka mikilvægar ákvarðanir inn- an fyrirtækja, banka og ríkisstofnana og ráðuneyta og mér er minnisstæð í því sambandi athugasemd sem ráðunautur þáverandi fjármálaráðherra og núver- andi forseta gerði við umfjöllun ritsins um fyrirhugaðan fjármagnstekjuskatt. Hann leit svo á að umfjöllun ritsins byggðist að einhverju leyti á misskiln- ingi sem ekki yrði undan vikist að leið- rétta, sem væri ennþá brýnna „vegna þess, að ýmsir virðast trúa eins og nýju neti öllu sem birtist í Vísbendingu." Þetta þótti mér ágælur vitnisburður. Hver var staða „Vísbendingar“? Á þessum tíma, fyrir og upp úr '90, var framboð af blöðum og tímaritum um viðskipti og efnahagsmál afar fátæklegt. Finnur Geirsson. Mig minnir að Morgunblaðið hafi verið að feta fyrstu skrefin í útgáfu viðskipta- kálfs en þar fyrir utan var ekki hægt að tala um eiginlega samkeppni. Þetta var auðvitað fyrir tíma vefmiðla og þeirra daglegu frétta sem greiningardeildir bankanna eru vanar að birta um þessar mundir. Mér var eðlilega mikið í mun að Vísbending hefði á sér þann stimpil að vera vandað rit og óháð hagsmunaáðil- um. Ég gekk svo langt í þessa átt skömmu eftir að ég tók við blaðinu að ég breytti útliti þess án þess að ræða um það við nokkurn mann og hafði það eins ólíkt einkennismerkjum Kaupþings og mér var framast unnt. Eftir á að hyggja var þetta náttúrulega fullgróft og núna undr- ast ég umburðarlyndi þeirra Kaupþings- manna á þessum tíma. Hins vegar mun ég ávallt minnast Péturs Blöndals með hlýhug fyrir að leyfa mér að komast upp með þetta og ég er reyndar ekki frá því að hann hafi að sumu leyti kunnað að meta uppátækið og dirfskuna. Þessu var hins vegar breytt fljótlega eftir að ég hætti og mátti þá sjá Kaupþingsmerkið í blaðhausnum fram að þeim tíma að nýir útgefendur komu að blaðinu. Hvernig líkaði þér vistin sem ritstjóri? Ég ritstýrði Vísbendingu í tæplega þrjú ár. Þetta var heilmikil vinna og allar helgar nánast undirlagðar þar sem ritið þurfti að komast í prentun á mánudegi til að geta borist áskrifendum á mið- vikudegi. Ritið var mjög dýrt í áskrift, hlutfallslega mun dýrara en það er nú, og það setti auðvitað rneiri pressu á þann sem bar ábyrgð á því. Mig minnir að ég hafi byrjað á því að viða að mér efni úr innlendum hagskýrslunt og ekki síst erlendum blöðum og ritum af ýmsu tagi og síðan tóku við skriftir. Sem betur 34

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.