Vísbending - 20.12.2002, Page 36
VISBENDING
aðarbankinn eignaðist helming í Kaup-
þingi. Einn bankastjóranna kvartaði undan
grein í blaðinu á stjórnarfundi (og víðar).
Hann var óánægður með að ríkisbankar
væru spyrtir saman í skrifum blaðsins,
því að afkoma Búnaðarbankans hafði
lengi verið betri en Landsbankans, og
bankastjórar hans stöðvuðu mun fyrr
pólitísk afskipti af lánveitingum. Einnig
var kvartað yfir lofi blaðsins um einka-
væðingu. Um þetta leyti hugðust stjórn-
völd selja Búnaðarbankann og sumir
bankastjóranna óttuðust um hag sinn á
frjálsum markaði.
Var þetta skemmtilegt starf?
Ég held að þau störf séu yfirleitt
skemmtilegust sem eru á mörkum þess
að vera of erfið. Ég neyddist til að
skipuleggja tíma og vinnubrögð. Auk
þess er varla til betri leið til að kynna sér
málefni en að skrifa um þau. Enginn
vaft er á að ég hafði gott af starfinu.
Á blað eins og „ Vísbending“ enn erindi?
Ég hef heyrt stjórnanda fyrirtækis tala
um að setja tiltekið efni í Viðskiptablað
Morgunblaðsins. Þar eru víst birtar
gagnrýnislítið fréttatilkynningar frá
góðurn auglýsendum (stundum fylgja
viðtöl með!). Svipað má eflaust segja
um fleiri fjöimiðla. Þess vegna er mikils
virði að til séu blöð eins og Vísbending,
þar sem greinarhöfundar eru aðeins háð-
ir eigin skoðunum, en ekki öðrum hags-
munum.
Rekstur Vísbendingar var löngum
með nokkra sérstöðu innan Kaup-
þings sem hafði sífellt einbeitt sér
meira að verðbréfamiðlun og rekstri
verðbréfasjóða. Tap var af útgáfunni
en Iengi var talið að það hefði sjálf-
stætt kynningargildi fyrir Kaupþing
að gefa út slíkt blað. Allt frá árinu
1987 munu þó öðru hvoru hafa komið
upp umræður um hvort ekki bæri að
hætta útgáfunni. Síðari hluta árs 1992
urðu viðræður milli Kaupþings og
Talnakönnunar um kaup síðarnefnda
fyrirtækisins á útgáfunni. Ekki náðust
þó samningar og strandaði bæði á því
að verðhugmyndir fóru ekki saman og
því að Kaupþing var ekki sannfært
um að lítið ráðgjafarfyrirtæki gæti
haldið uppi merki blaðsins (að því er
forráðamenn Kaupþings hafa síðar
sagt). Fleiri kaupenda mun hafa verið
leitað. Engu að síður komu stjórnend-
ur Kaupþings aftur að máli við stjórn-
anda Talnakönnun í lok mars árið
1993 og þá gengu samningar vel. Vís-
Sverrír Geirmundsson.
Benedikt Jóhannesson.
bending hefur alla tíð síðan verið í
eigu Talnakönnunar en árið 2000 var
stofnað dótturfyrirtæki um útgáfu-
rekstur fyrirtækisins og heitir útgáfu-
félagið nú Heimur hf.
Sigurður Jóhannesson lét af stöfum
í byrjun september árið 1993. Bene-
dikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Talnakönnunar, tók þá við Vísbend-
ingu til bráðabirgða þar til Sverrir
Geirmundsson hagfræðingur tók við
ritstjórn blaðsins í lok september.
Sverrir, sem starfað hafði hjá Ríkis-
endurskoðun, ritstýrði Vísbendingu
fram í lok febrúar árið 1995. Hann
starfar nú sem ráðgjafi hjá Kaup-
þingi.
Ásgeir Jónsson hagfræðingur tók
við ritstjórn Vísbendingar af Sverri og
stýrði blaðinu fram í byrjun ágúst-
mánaðar sama ár. Ásgeir átti þó eftir
að koma aftur við sögu því hann tók
Ásgeir Jónsson.
við ritstjórn blaðsins á ný sumarið eft-
ir, stýrði blaðinu frá byrjun júní til
loka ágústmánaðar, en Ásgeir stund-
aði doktorsnám í Bandaríkjunum á
þessum tíma. Ásgeir skrifaði lengi vel
reglulega í Vísbendingu eftir að hann
var fyrst ritstjóri og hefur getið sér
gott orð fyrir frumlega umræðu og
mikla yfirsýn yfir hagsögu Islands.
Hann starfar nú sem sérfræðingur hjá
Hagfræðistofnun og kennir við Há-
skóla íslands.
Allt frá því að Ásgeir gegndi stöðu
ritstjóra í fyrsta skipti hefur Benedikt
Jóhannesson stærðfræðingur verið í
ritstjórn Vísbendingar. Um það leyti
urðu „Aðrir sálmar“ til á baksíðu sem
Benedikt hefur að mestu skrifað síð-
an. Ásamt því að hafa ritstýrt fáeinum
blöðum eftir að Sigurður Jóhannesson
hætti og Sverrir Geirmundsson tók
við ritstýrði hann blaðinu eftir að Ás-
geir lét af störfum í fyrra skiptið þar
til hann tók við á ný, þ.e. frá ágúst
árið 1995 fram í byrjun júní árið 1996.
Einnig ritstýrði Benedikt blaðinu í
septembermánuði sama ár og hefur
tekið við ritstjórn í afleysingum fyrir
sitjandi ritstjóra. Benedikt hefur lengi
vel verið áberandi í íslensku við-
skiptalífi og er þekktur fyrir gott orð-
færi. Hann starfar sem framkvæmda-
stjóri Talnakönnunar og gegnir trún-
aðarstöðum í mörgum af stærstu fyrir-
tækjum landsins.
Tómas Örn Kristinsson rekstrar-
hagfræðingur tók við ritstjórn Vís-
bendingar í lok september árið 1996
og ritstýrði blaðinu fram í lok febrúar
árið 1999. Tómas tók að fjalla meira
um stjórnun og tækni en áður hafði
36