Vísbending


Vísbending - 20.12.2002, Síða 37

Vísbending - 20.12.2002, Síða 37
VISBENDING þekkst í Vísbendingu en hann er ein- nig tölvunarfræðingur að mennt. Tómas starfar nú sem framkvæmda- stjóri peningamálasviðs hjá Seðla- banka íslands. Hann svaraði nokkrum spurningum um þá reynslu að vera rit- stjóri Vísbendingar. Hvernig kom til að þú varðst ritstjóri? Það var fremur stuttur aðdragandi að komu minni á Vísbendingu. Ég hafði látið af starfi á Verðbréfaþingi íslands og var í tímabundnum verkefnum í Seðlabankanum og var að íhuga fram- tíðarstarf þar. Ég hafði skráð mig á nokkrar vinnumiðlanir og fékk í fram- haldinu símtal frá Benedikt Jóhann- essyni en hann hafði kennt mér í Há- skólanum fyrir margt löngu. Ég mætti í viðtal til hans á laugardagsmorgni og var ráðinn á staðnum. Ég hafði ekki skrifað í Vísbendingu en ræða sem ég hafði flutt á ársfundi Verðbréfaþings hafði verið umrituð til birtingar ein- hverjum árum áður. Hvað einkenndi efnahagsumræðuna á þessum tíma? Þjóðin var að rísa úr efnahagslægð og allt var að fara á fullt í hagkerfinu, jarð- göng og álver í byggingu. Verðbréfa- markaðurinn var á góðri siglingu og rík- ið var að ná tökum á langvinnum tjár- lagahalla. Farið var að hilla undir evruna og almennt var uppgangstínri í heimin- um. Fáar blikur voru á lofti fyrir utan vaxandi viðskiptahalla og voru fá tæki- færi ónotuð til að vara við honum. Hvernig byggðir þú greinaskrif þín upp? Flestar greinarnar sem ég skrifaði byggð- ust á rituðum heimildum og voru að meira eða rninna leyti grúsk á vinnustað eða í bókasöfnum en stöku sinnum fór ég í vettvangsferðir, t.d. minnist ég skemmti- legrar heimsóknar í Sorpu þar sem ég kynntist þvf fjölbreytta starfi sem þar er unnið og ritaði í framhaldinu grein um endurvinnslu á íslandi. Þann tíma sem ég starfaði við blaðið lagði ég dálítið upp úr útlitinu og myndskreytti það eins og tæki- færi gáfust til. Mér fannst það líflegra fyrir vikið en fékk þó að heyra að þetta væri að verða eins og „skólablað" en lét það svo sem ekkert á mig fá. Varðstu var við heitar umrœður út af einhverju sem þú skrifaðir í „Vísbend- ingu“? Það urðu allsnarpar umræður urn grein- ar þar sem fjallað var um fjármál sveit- Tómas Örn Kristinsson. arfélaga. Ég tók upp á þeirri nýbreytni að búa til svokallað „draumasveitarfé- lag" þar sem ég gaf stærstu bæjunum einkunnir fyrir ýmsa liði er tengdust fjármálastjórnun og fleiru. Þetta vakti mismikla ánægju. Bæjarastjórar og end- urskoðendur hringdu unnvörpum, aðal- lega til að kvarta en sumir til að fá frek- ari upplýsingar. Einn spurði m.a. hvernig hann ætti að breyta rekstri sveitarfélags- ins til að hækka á listanum. Það urðu einnig blaðaskrif í öðrum fjölmiðlum út af þessu. Tilgangur ntinn með þessari einkunnargjöf var m.a. að fá aukna um- ræðu, því að samanburður á rnilli sveit- arfélaga er allflókið mál og því eru menn tregir til að fara út í slíkan saman- burð. Þótt samanburður Vísbendingar væri langt því frá gallalaus gaf hann ákveðnar vísbendingar og til þess var leikurinn gerður. Önnur grein sem ég man eftir að olli fjaðrafoki var grein um framtíðarkostn- að íslenska ríkisins vegna öldrunar á næstu áratugum. Þáverandi landlæknir tók þetta óstinnt upp og hringdi fremur illur í mig og húðskammaði mig fyrir viðhorftn sem fram komu í greininni. Ég bað hann um að skrifa frekar grein í Vís- bendingu og koma skoðunum sínum á framfæri við lesendur. Þetta gerði hann og síðan aftur eftir að ég hafði svarað einhverju til í millitíðinni. Vhr annasamt verk að ritstýra „Vís- bendingu"? Mest gefandi í útgáfunni var vinnan við jólablað Vísbendingar. Þar voru efnistök allt önnur en venjulega og afraksturinn mun veglegri en maður átti að venjast. Það þurfti að leita fanga víða og því fylgdu samskipti við skemmtilegt fólk. Ég reyndi að vera uppfinningasamur um fyrirsagnir greina og stöku sinnum þurfti eigandinn að grípa í taumana þeg- ar honum fannst full langt gengið en allt var það góðfúslega tekið til greina. Það sem var verst í vinnunni var þegar grein- ar brugðust sem búið var að lofa fyrir tiltekið tölublað. Það þýddi oft setur langt fram á nætur við að skrifa grein í staðinn. Stundum gerðist þetta nreð til- tölulega litlurn fyrirvara og slíkt gat sett ýmislegt úr skorðum. Var þetta góð reynsla? Vísbending var góður skóli. Þar gilti sjálfsagi og ekki var hægt að víkjast undan, blaðið varð að koma út, hvað sem á dyndi. Það reyndi oft á útsjónar- semi og sveigjanleika en á endanum bjargaðist allt. Ritstjórastaða Vísbend- ingar var einyrkjastarf þann tíma sem ég starfaði þar og er því injög bindandi en starfsmenn Talnakönnunar voru góðir samstarfsmenn. Eyþór ívar Jónsson tók við ritstjórn Vísbendingar í byrjun mars árið 1999 og hefur ritstýrt blaðinu síðan. Eyþór er viðskiptafræðingur. Var einhver aðdragandi að því að þú settist í ritstjórastól „Vísbendingar"? Það var satt að segja fyrir hreina tilvilj- un því að ég var staddur í Danmörku þar sent ég var að Ijúka við meistaraprófs- ritgerð og var að velta því fyrir mér hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur næst. Svo vildi til að ég hitti gamlan fé- laga í áramótaboði á Islandi sem starfaði hjá Talnakönnun og Vísbending kom til tals þar sem ég hafði skrifað nokkrar greinar í blaðið. Þar frétti ég að Tórnas væri að hætta sem ritstjóri svo í ein- hverjum hálfkæringi sendi ég tölvupóst á Benedikt í janúar þar sem ég spurðist fyrir um stöðuna og það vildi svo vel til að hann hafði lesið og líkað vel bókin „Frumkvæði til framfara" sem ég hafði skrifað og hafði verið gefin út árið áður. Úr varð að ég yfirgaf Danmörku og fluttist til íslands. Urðu einhverjar breytingar á rit- stjórnarstefnunni? Ég áttaði mig á að ég hafði rennt svolít- ið blint í sjóinn og gerði því nokkra at- hugun á markaðsaðstæðum. Greinilegt var að umræðan, og útgáfa efnis, um viðskipta- og efnahagsmál var orðin miklu meiri en hún hafði nokkru sinni verið í sögu Vísbendingar og mikið af þessu efni var orðið aðgengilegt á net- inu. Það hvarflaði þvf að mér að Vís- 37

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.