Frjáls verslun - 01.05.1939, Page 7
Segist konsúllinn hafa fengið ákúrur hjá ýmsum fyr-
ir stofnun matvörudeildarinnar, með því að bændum
þyki verðið of lágt, en bæjarmönnum of hátt. En á þess-
ari deild kveðst hann hafa tapað stórum, einkum fyrsta
árið, og svo sé um flest þau fyrirtæki, sem hann fái
mestar ákúrur fyrir, en sliku vill oft við bregða, þegar
um framtakssama menn er að ræða.
Samkomuhús hefir verzlunin útbúið í haust sem leið
í húsi, sem hún keypti nýlega við Lækjartorg, milli Ný-
hafnar og íslandsbanka. Það hús átti áður Kristilegt
félag ungra manna og hélt þar samkomur sínar.
Magasínið sér sjálft fyrir lýsingu og- hreinsun á göt-
unum í kring um sig. Slökkvitól og eldsvoðabjörgunaiv
tæki hefir það einnig sjálft, eina stóra dælu, margar
handdælur og auk þess slökkviáhöld i hverju einasta
herbergi í öllum húsunum.
Þetta, sem hér hefir verið sagt, er aðeins örstutt yfir-
lit, og er niargs ógetið. En þetta mun þó nægja til að
gefa mönnum nokkra hugmynd um hve marga hluti ber
NýlenduvörudeilcLin.
fyrir augu á hringferð þeirra um Magasínið, og hve
margbreyttar vistarverur séu þar. 126 menn hafa þar
nú fasta atvinnu, en auk þeirra er þar að öllum jafnaði
fjöldi daglaunamanna“.
Þannig endar frásögn „Óðins“ um hinar ýmsu deildir
í Thomsens Magasini, en ýmsir gamlir Reykvíkingar
hefðu þar án efa mörgu við að bæta.
Matardeildin.
Thomsens-feðgar
Stofnandi Thomsens Magasíns var Ditlev Thomsen,
eldri, afi Thomsens yngra, þýzkur maður að ætt. Hann
varð fyrst verzlunarstjóri í Keflavik 1827, en fluttist
hingað til Reykjavíkur 10 árum síðar, 1837, og fór þá
að verzla sjálfui', fyrst í
Austurstræti en siðan í Hafn-
arstræti, og byggði húsið á
Lækjartorgi, sem hér fylg'ir
mynd af, 1848. Mann var
kvæntur íslenzkri konu. ■—
Lengi var hann hér í bæjar-
stjórn og gat sér þar góðan
orðstír. Hann var ör í lund
eins og þeir ættmenn fleiri.
Hann drukknaði á „Sölöven“
1858. Sonur hans, er þá tók
við verzluninni, Hans Theo-
dor August Thomsen, sem H. T. A. Thomsen.
mynd er hér af, var fæddur
í Keflavík 1834 og ólst upp hjá föður sínum þar og hér
í Reykjavík, en gekk siðan í skóla í Kaupmannahöfn.
Hann bjó hér í mörg ár, fyrst eftir að hann tók við
verzluninni, en flutti síðan til Kaupmannahafnar, og
var heimiii hans þar þekkt fyrir gestrisni. Hann var
mjög vel metinn
maður og hinn
áreiðanlegasti í
öllum viðskipt-
um, og efldist
verzlunin mjög
um hans daga.
Hann dó i Kaup-
mannahöfn 1899,
en hafði skipað
svo fyrir, að lílt
hans skyldi flutt
til Reykjavikur. — Sonur hans, Ditlev Thomsen konsúll,
varð síðan eigandi verzlunarinnar og var það þar til
hún hætti í stríðsbyrjun.
Ditlev Thomsen fæddist í Reykjavík 1867 en fluttist til
Kaupmannnahafnar með foreldrum sínum 4 ára gamall.
Hann kom þó ungur aftur hingað til lands og var þá
fyrst á Eyrarbaklca og síðar í Reykjavík. Hann var mað-
ur viðförull og vel menntaður. Um skeið var hann for-
stjóri „Hinnar islensku eimskipaútgerðar", sem var
skammlíft fyirtæki, en ekki mun það hafa verið Thom-
sen að kenna. Ditlev Thomsen tók við verslun föður síns
að honum látnum og gerðist brátt umsvifamikill. I
félagslífi Reykjavíkur var Thomsen mjög áberandi, því
hann var að eðlisfari ötull maður og fi'amgjarn. Um
slceið var hann formaður Kaupmannafélagsins og
Reykjavíkurklúbbsins. Hann var einn helsti styrktar-
maður Verslunarskólans. Thomsen var einn helsti hvata-
maður að stofnun Verslunarmannafélags Reykjavikur,
fyrsti formaður þess og slðar heiðursfélagi. Var V. R.
mikill stuðningur að því á fyrstu árum sínum að eiga
svo traustan styrktannann sem Thomsen konsúll var.
Thomsen fluttist til Kaupmannahafnar, er hann hætti
verzlun og andaðist þar árið 1937.
FRJÁLS VERZLUN
7