Frjáls verslun - 01.10.1951, Blaðsíða 20
Kristjún Ólafsson Skag-
fjör'8 stórkaupmaður and-
aðist 26. sept. s. 1. Hann
var fæddur 11. okt. 1883
í Flatey í Breiðafirði, son-
ur hjónanna Ólafs Krist-
jánssonar Skagfjörð verzl-
i narstjóra og Jóhönnu Haf-
liðadóttur, konu hans, ætt-
aðri frá Svefneyjum. Hann
byrjaði ungur að stunda
rerzlunarstörf, bæði í Flatey
og á Patreksfirði, og
dvaldist þar fram undir þrítugsaldur. Þá tók hann sig
upp frá æskustöðvum og hélt til Englands. Stundaði
hann nám við verzlunarskóla í London og lauk námi
1913. Eftir það starfaði hann um skeið hjá brezkum
verzlunarfyrirtækjum. Árið 1916 hvarf hann heim til
íslands og stofnsetti umboðs- og heildverzlun þá, er
hann starfrækti jafnan síðan.
Kristján lét sig félags-og íþróttamál miklu skipta,
og var hann fyrir löngu orðinn þjóðkunnur maður
fyrir afskipti sín af Ferðafélagi íslands og Skíðafélagi
Reykj'avikur. Má fullyrða, að bæði þessi félög eigi
vöxt sinn og viðgang frábærum dugnaði og ósér-
hlífni Kristjáns að þakka. Sjálfur notaði hann hvert
tækifæri sem gafst til þess að njóta hins heilnæma
útilofts, hvort heldur var í göngu- eða skíðaferðum.
Kristján var maður þéttur á velli, fríður sínum og
drengilegur. Hann var yfirlætislaus, en þó manna
höfðinglegastur í framgöngu. Báru allir til hans ótak-
markað traust, er honum kynntust.
Kvæntur var hann Emilíu Hjörtþórsdóttur, verzlun-
armanns á Eyrarbakka, er lifir mann sinn, og áttu þau
eina dóttur barna.
Jóhannes Gunnarsson kaupma'ður í Hafnarfirði and-
aðist 28. sept. síðastl. Guðni Jóhannes Gunnarsson, en
svo hét hann fullu nafni, var fæddur í Vopnafirði 8.
nóv. 1903, sonur hjónanna Gunnars Árnasonar skó-
smiðs og kaupmanns og Hólmfríðar Hjartardóttur konu
hans. Ungur að aldri flutt-
ist hann með foreldrum sín-
um til Keflavíkur og ólst
þar upp. Vorið 1923 útskrif-
aðist hann úr Flensborgar-
skólanum, en stundaði eft-
ir það einn vetur nám í
Verzlunarskólanum. Vefn-
aðarvöruverzlun selti hann
á stofn í Hafnarfirði 1928
í félagi við tengdaföður
sinn, sem þeir starfræktu
saman um skeið, en Jóhann-
es varð þó brátt einkaeigandi hennar.
Það var niikið áræði fyrir félítinn og reynslulaus-
an mann að stofna sérverzlun í ekki fólksfleiri stað
en Hafnarfjörður var á þeim tíma. Verzlun Jóhann-
esar dafnaði öruggum skrefum, enda vann hann öll-
um stundum sjólfur við verzlunina og hlífði sér hvergi.
Jóhannes var maður glaður og ljúfur í viðmóti, dug-
legur og árvakur og prúðmenni hið meeta.
Kvæntur var hann Sigurveigu Steingrímsdóttur,
Torfasonar kauj)manns í Hafnarfirði, sem lifir mann
sinn, og áttu þau fimm börn.
Eggert Jónsson úlgerðar-
mabur frá Nautabúi and-
aðist 28. sept. s.l. Fæddur
var hann 16. marz 1890 í
Sölvanesi í Lýtingsstaðahr.
í Skagafirði. Voru foreldr-
ar hans þau hjónin Sólveig
Eggertídóttir, Jónssonar
prests á Mælifelli, og Jón
Pétursson bóndi á Nauta-
búi og síðar í Evhildar-
holti í Skagafirði. Eggert
stundaði nám við Verzlun-
arskóla íslands og lauk þaðan prófi 1910, tvítugur að
aldri. Hóf hann strax verzlunarstörf að námi loknu,
144
FRJÁ.LS VERZLUN