Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 2
Heimsókn
banda-
rísku
Talið frá vinstri: Glenn II. Bridgeman, Walter II. Channing, Jay D. Runlcle,
Cresslyn L. Tilley, og Maurice L. Nee, jorm. sendinefndannnar.
sérfræðinganna í smásöludreifingu
Iðnaðarmálastoínun íslands gekkst íyrir því í
samráði við verzlunarsamtökin í landinu, að hing-
að komu fimm bandarískir sérfræðingar í við-
slciptaaðferðum smásöluverzlana. Héldu þeir nám-
skeið með kaupmönnum og verzlunarfólki í rekstri
nútíma-smásöluverzlunar og heimsóttu verzlunar-
fyrirtæki og létu í té góð ráð og leiðbeiningar. Hér
í Reykjavík var fyrra námskeiðið haldið í Iðnó
kvöldin 6., 7. og 8. september og voru þátttakend-
ur um 350 að tölu. Að deginum til voru svo haldnir
sérfundir til þess að gera betri skil sérstökum
áhugamálum, sem ekki vannst tími til að ræða
á kvöldnámskeiðinu. Færri en vildu komust að á
fynra námskeiðinu, og var því horfið að því ráði
að endurtaka þau dagana 14. og 15. september, ör-
lítið stytt. Var síðara námskeiðið haldið í salar-
kynnum V.R. í Vonarstræti 4, og var það einnig
fullskipað, en Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
var aðili að heimsókn þessari.
Sérfræðingarnir brugðu sér einnig til Akureyrar
og héldu þar námskeið með kaupmönnum og
verzlunarfólki. Var hvarvetna mikill áhugi fyrir
komu þeirra, og má eindregið vænta, að þau hafi
komið að góðu gagni, enda fyrirlestrarnir allir hinir
athyglisverðustu. Er vel, þegar sérfræðingar eru
fengnir hingað til að kenna okkur betri og hag-
nýtari starfsaðferðir á sem flestum sviðum, og
mun mega vænta áframhalds á þeirri braut.
I fyrirlestrum sérfræðinganna var einkum lögð
áherzla á stjórn smásöluverzlana, sölu, innkaup,
birgðaskráningu og birgðaeftirlit, kostnaðaraætl-
anir, söluþjálfun, söluaðlögun, auglýsingatækni og
gluggaútstillingar.
FRJÁLS VERZLUN birtir hér á eftir útdrætti úr
þremur fyrirlestrum, sem haldnir voru á námskeið-
uniun, svo að þeir, sem ekki gátu komið því við
að hlýða á fyririlestrana, geti kynnt sér efni þeirra.
114
FRJÁLS VERZLUN