Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 20
snúð, og virðist það lítil borgun fyrir alla fyrir- höfn hans. — Alls var reikningur Sniiths kon- súls rúmir 137 rd. — Hefur því kostnaður við jarðarförina orðið alls upp undir 300 rd., sem mundi samsvara allt að því 9 þúsundum króna í vorra tíma verðmæti, og er það óneitanlega allálitleg upphæð. — -----o---- Tveim dögum eftir jarðarförina var svo dán- arbúið skrifað upp og reyndust eignir þess all- miklar. Samkvæmt virðingu voru allar eignir 'búsins 22.111 rd. 75 sk., sem væri ekki lítið fé í nútíma verðmæti, líklega allt að því 1 miljón krónur, og miklu hærri upphæð, ef tekið væri tillit til þeirrar verðhækkunar, sem nú er orðin á' þeim fasteignum og lóðum, sem Þorsteinn átti í miðbænum. Það varð nú samt minna úr öllu þessu verðmæti, en ætia mætti, því að illa gekk að koma eignum búsins í peninga, þegar til kom, og að lokum fengu víst erfingjarnir harla lítið', en 'svona hefur oft farið um eignir ríkra dánar- búa fyrr og síðar. — í peningum átti Þorsteinn heima hjá sér, aðeins 95 rd. og 15 sk. — Þann 6. desember var tekið til að skrifa upp vörurnar í sölubúð Þorsteins og innbú hans, sem var mjög vandað, eins og áður var getið. Það var full- komlega við hæfi stöðu hans og efnahags, en hann hefur áreiðanlega haldið uppi risnu og höfðingsskap, að sið efnaðra kaupmanna á þeim árum. — Benedikt Gröndal segir t. d. frá því, að á fæðingardegi Þorsteins 25. nóv.,1) „var ætíð eitthvert hið mesta slark, sem hér varð, því að þá komu allir og drukku hjá honum frá morgni til kvölds, en annars var Þorsteinn enginn óreglu- maður“, — eða m. ö. o. hefur kaupmaðurinn haft „opið hús“ þennan dag, og veitt öllum, sem bar að garði hans, einnig „setuliði“, sem eflaust hefur þá verið í slíkum veizlum, engu síður en nú, þó að Gröndal geti þess ekki sérstaklega. — Virðingarverð vörulagers og innanstokksmuna varð rúmir 8000 rd., og svo var uppskriftin ná- kvæm, að henni var ekki lokið fyrr en rétt fyrir jólin, eða 19. des. — Fas'teignir búsins vom mikl- ar, allar í Miðbæjarkvosinni, og eru nú margra miljóna verðmæti. — Hann átti: Verzlunarhús sín (Handelsetablissementet — Varningshus, Krambod og 3 Pakhuse) við Hafnarstræti 16, og voru öll þau liús virt með lóðum á 6500 rd. — Einn þriðja hluta Klúbbshússins, sem kallað 1) ]}. Gr.: Dægnwlvöl bls. 201. var Skandinavien, og stóð þar sem Herkastalinn er, átti Þorsteinn, en þessi eignarhluti var virt- ur á 2000 rd. — Svo átti hann líka hálfa Bisk- upsstofuna gömlu, en þ. e. verzlunarhús Silla og Valda í Aðalstræti 8, og var sú eign.virt á 800 rd. — Loks átti Þorsteinn 4/9 hluta af „dr. Egilsens Hus“, en það var hús Sveinbjamar rektors, og stóð þar sem Veltan er við Austur- stræti nr. 1, og var sú eign einnig virt á 800 rd. Auk þess átti Þorsteinn þrjár jarðir í nágrenni höfuðstaðarins. Hann átti Keldur í Mosfells- sveit, sem voru virtar á 650 rd., Grafarkot í sömu sveit, virt á 300 rd., og Bakkakot á Alfta- nesi, sem einnig var virt á 300 rd., og loks var eign hans 1/12 hluti Lauganess, sém hann, ásamt Hannesi St. Johnsen, hafði haft forgöngu um að kaupa, og sagt verður nánar frá í sambandi við Hannes hér á eftir, en þessi eignarhluti Þor- steins í Lauganesi var virtur á 178 rd. A upp- skrift búsins er sýnilegt, að Þorsteinn hefur mátt teljast ríkur maður á þeirra tíma mælikvarða, ekki sízt ber það vott um útsjón hans og dugn- að, þegar tekið er tillit til þess, að hann deyr, eins og áður getur, aðeins miðaldra, eða þegar hann stendur rétt á fimmtugu. ----—----------- STARFSMANNADÁLKUR 2. ágúst síðastliðinn tók til starfa hjá Iðnaðarmála- stofnun Islands Loftur Loftsson, efnaverkfræðing- ur. Loftur er fæddur 2. október 1923 í Reykjavík, sonur Lofts Loftssonar út- gerðarmanns og konu hans, Ingveldar Olafsdóttur. Loftur lauk stúdentsprófi 1945 frá Mennta- skólanum í Reykjavík og haustið 1947 hélt hann til Kanada til náms í efnaverkfræði. Vorið 1952 lauk hann B. Engineering prófi frá McGill há- skólanum í Montreal, Kanada, og sama haust byrjaði hann á framhaldsnámi í matvælaiðn- fræði við Massachusetts Institute of Technology (M.I.T.) í Massachusett, U. S. A. Vorið 1954 laulc hann þaðan Alaster of Science prófi. Loftur er nýkominn til Islands eftir að hafa ferðast víða um Bandaríkin og Kanada og skoð- að þar verksmiðjur, vísindastofnanir o. s. frv. 132 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.