Frjáls verslun - 01.08.1955, Page 6
2. Lítið á verzlun yðar frá sjónarmiði við-
skiptavinanna.
3. Mætið' samkeppninni.
4. Vitið, hverjir eru beztu verðflokkarnir.
5. Gerið verðlækkanir á réttum tíma.
6. I»ið getið ekki bjargað ykkur út úr mis-
tökum með auglýsingum.
7. Samhæfa ber aðgerðir og tíma.
8. Kaupið ekki of mikið inn.
í). Gætið að fjármagni yðar.
10. Góður rekstur byggist á góðu skipulagi.
11. Þekkið samkeppnina.
12. Verið sannleikanum samkvæmir.
13. Hafið hugfast, að smekkvísi verður ekki
rnetin til peninga,
14. Standið' við orð yðar.
15. Verið góður kennari.
16. Verið stjórnandi.
Glenn H. Bridgeman:
Auglýsinga- og kynningaraðferðir
r---------------------------------------------------------A
GLENN H. BRIDGEMAN, aulýsinga- og söluað-
löðunarsórfræðingur (sales-promotion specialist).
Staríaði í mörg ár hjá I. C. Penney Co., sem
er eitt stærsta smásölufyrirtæki í Bandaríkjunum.
Hann hefur mikla reynslu á sviði auglýsinga,
söluaðlöðunar, sýnitækni og sjálfsvalsverzlunar
og hefur starfað við mörg meiri háttar fyrirtæki
í þessum greinum. Hefur starfað á vegum fram-
leiðniráðs í mörgum Evrópulöndum.
SÉRGREIN: AUGLÝSINGAR OG SÝNITÆKNI
(Advertising and Display).
^_________________________________________________________J
í kvöld ætla ég mér ekki að tala um auglýs-
ingar frá vísindalegu sjónarmiði, því að ég er
hagsýnn og hef fengizt við smásöIuVerzlun alla
æfina, Ég ætla að tala um hins gagnlegu hlið
auglýsinga eins og hún snýr að ykkur1 stéttai--
systkinum mínum. Ef þið' óskið eftir að bera
fram fyrirspurnir eða fá frekari upplýsingar um
einhver atriði fyrirlestursins að loknu máli mínu,
vona ég, að þið skrifið spurningarnar á miðana,
sem þið haíið fengið, og áðúr en kvöldnámskeið-
inu lýkur, munum við svara þeim fyrir ykkur.
Áður en við snúum okkur að auglýsingum sem
slíkum, vildi ég benda á eitt atriði, og það er
skilningur kaupmannsins á valdi og áhrifum
ánægðs við'skiptavinar. Engin verzlun getur
þrifizt, nema eitthvað sé selt og viðskiptavinirnir
séu ánægðir með það. Slíkur viðskiptavinur hef-
ur þó nokkurt auglýsingagildi. Ef þið' skiljið þetta
til fullnustu, er ég viss um, að þið munið setja
bros, góða þjónustu og ánægju inn í sérhvem
pakka, sem þið pakkið' og afhendið yfir búðar-
borðið. Ef til vill hafið þið ekki hugsað út í það,
að ánægður viðskiptavinur er góð auglýsing, en
mér finnst allt, sem þið getið gert til að afla
aukinna viðskipta, sé góð auglýsing. Það er allt-
af eitthvað fleira, sem þið getið gert, ef 'þið leit-
ið að verkefninu og framkvæmið.
Verzlun yðar, skínandi búðarborðin með varn-
ingnum, sem nemur miklu verðmæti, afgreiðslu-
fólkið, reiðubúið og viljugt til að sinna viðskipta-
vinum, eru eins og falleg, ný bifreið með glamp-
andi krómi, skínandi gljáa. og aflmikilli vél. Bif-
reiðin er algjörlega ónothæf, þar til benzín er sett
á hana. Jæja, auglýsingar eru benzínið í við-
skiptalífinu — áfellizt ekki bifreiðina., ef hún
hættir að ganga án þess. Augiýsingar eru eitt
hið mesta, afl í heiminum í dag. Þér munuð kom-
ast að raun um, að það er arðvænlegt að auka
auglýsingastarfsemina.
Að hvaða leyti geta auglýsingar þá hjálpað
ykkur? Hverju eigum við að svara efablöndnum
verzluna.reiganda, sem spyr:
Hvers vegna skyldi ég auglýsa? — Það kostar
mikla peninga.
Hvers vegna ætti ég að kosta til gluggasýn-
inga? — Oft verða vörumar óhreinar, og ég
neyðist til að selja þær við niðursettu verði.
Hvers vegna ætti ég að hafa áhyggjur út af
útlitinu á verzluninni? — Fólk biður um það,
sem það þarfnast, þegar það kemur inn í verzl-
unina.
Hvers vegna ætti ég að eyða mikhun tíma í
að ráða og æfa lærfinga, ég get ekki 'betur en
fengið' þá til að pakka vörunum réttilega inn?
118
FRJÁDS VERZLUN