Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 12
hana í gang, eftir að sýnt hefur ver-
ið, hvemig á að gera það. Talið um
vöruna um leið og þér sýnið hana,
en veitið viðskiptavininum færi á að
komast að og spyrja. Byrjið á að
sýna vörur á miðlungsverði. Sýnið
viðskiptavini alltaf það, sem um er
spurt. Hafið það fyrir reglu að setja
þrjár tegundir fyrir viðskiptavininn,
þótt fleira megi sýna síðar.
4. Aðstoðið viðskiptavininn í ákvörðun:
Sýnið þrjár tegundir í einu, eins og
og fyrr segir, til að auðvelda við-
skiptavini valið.
Sölumaður ætti að gera. tillögur til
hjálpar, en forðast þvingunaraðferð-
ir. Viðskiptavini líkar vel að fá heið-
arlegar ráðleggingar æfðra sölu-
manna, sem hafa vöruþekkingu og
virðast vita, hvað þeir em að gera.
5. Margföldun sölu:
Æfa ætti sölumenn í að sýna og
benda á fleiri vörutegundir, ef gild
ástæða er til. I fjölda tilfella eru
þrjár góðar ástæður fyrir hendi:
a. Með því að varan er skyld hlut-
um, sem viðskiptavinur var að
enda við að kaupa. Vömr, sem
fara saman og eru notaðar sam-
an, ætti að sýna og selja saman.
Þess vegna ættu skyldar vörur að
vera staðsettar saman.
b. Með því varan er ný.
Fólk hefur áhuga fyrir nýjum
hlutum, þótt ekki sé keypt strax.
Sýnið nýjan varning.
c. Með því varan er sérstaklega
auglýst eð'a útstillt. Þá ætti að
vera gild ástæða til að vekja at-
hygli viðskiptavinar á viðkom-
andi vöru, og þá æt'ti að beina
athygli hans að henni á meðan
hann er staddur í verzluninni.
ATH. Sölumenn ættu að vita,
h\ærs vegna verið er að auglýsa
vissa hluti.
6. Skiijið við viðskiptavininn í góðu
skapi:
Ef sölumaður getur ekki gert við-
skiptavin ánægðan, ætti að kalla á
yfirmann, áður en viðskiptavinurinn
fer út úr verzluninni.
Mirmist lögmáls sölumannsins:
Komið ávallt fram við viðskiptavin-
inn eins og þér vilduð að komið væri
fram við yður í hans sporum.
Nýr íslenzk-rússneskur viðskiptasamningur
Föstudaginn 23. septemiber s.l. var undirritað
í Moskvu samkomulag um viðskipti milli Islands
og Sovétríkjanna á tímabilinu frá 1. janúar til
31. desember 1956. Pétur Thorsteinsson sendi-
herra undirritaði samkomulagið fyrir Islands
hönd, en I. G. Kabanov utanríkisverzlunarráð-
herra fyrir hönd Sovétríkjanna. Samkomulag
þetta er gert í samræmi við ákvæði viðskipta-
og greiðslusamningsins milli fslands og Sovét-
ríkjanna frá 1. ágúst 1953.
Samkvæmt nýjum vörulistum, sem samkomu-
laginu fylgja, kaupa Sovétríkin á tímabilinu
20.000 tonn af frystum fiskflökum, 15.000 tonn
af saltsíld og aðrar vörur fyrir 2 miljónir króna,
Ráðgert er, að íslendingar kaupi í staðinn eft-
irtaldar vörur og magn:
Brennsluolíur 230.000 tonn
Bifreiðabenzín 40.000 —•
Pípur 2.000 tonn
Steypustyrktarj árn 1.500 —
Plötujám, prófíljám og
aðrar járnvörur 1.500 —
Hveiti og hveitiklíð 5.000 —
Rúgmjöl 2.500 —
Hrísgrjón 400 —
Kartöflumjöl 300 —
Koks 1.800 —
Antraslt-kol 1.200 —
Gaskol 600 —
Sement 30.000 —
Timbur 8.500 stam
Auk þess er gert ráð fyrir, að keyptar verði
bifreiðar fyrir 1.8 miljón krónur og ýmsar aðrar
vörur fyrir 10 miljón krónur.
í íslenzku samninganefndinni átti sæti, auk
sendiherra, Þórhallur Ásgeirsson, skrifstofustjóri.
124
FRJÁLS VERZLUN