Frjáls verslun - 01.08.1955, Page 22
A RETTRI LEIÐ
Framh. aí bls. 113.
landi svo að teljandi sé. VERZLUNARRÁÐ ÍS-
LANDS á því þakkir skilið iyrir að hafa fengið
hingað til lands sérfróðan mann í þeim efnum,
forstjóra Oslókauphallar, til þess að kynna starf-
semi slíkra stofnana. Það væri vafalaust mjög
æskilegt að til væri hér stofnun, er skráð gæti
gengi verðbréfa og veitt ábyggilegar upplýsingar
um verðsveiflur á heimsmarkaði, breytingar flutn-
ingsgjalda, uppskeruhorfur, framleiðslumagn o. fl.
Hitt er svo annað mál, hvort íslenzkt efnahagskerfi
og félagaform er þannig vaxið í dag, að myndun
slíkrar stofnunal• sé tímabær. En allavega hefur
umrædd heimsókn vakið menn til hugsunar um
þetta efni og er það þess vert, að nánar séu nú
athugaðir möguleikar fyrir starfsgrundvelli kaup-
hallar hér á landi.
VERZLUNARSTÉTTIN hefur sýnt mikinn áhuga
fyrir framangreindum heimsóknum og hafa fyrir-
lestrar og námskeið í sambandi við þær verið
afar fjölsótt; er það lofsamlegt og ber vott um
framsækni stéttairnnar og vilja til úrbóta. En verzl-
unarstéttin þarf að hagnýta þennan þekkingar-
auka enn betur og blátt áfram að virkja eigin
reynslu betur í þágu þeirra, sem eru að hefja
göngu sína á verzlunarbrautinni og einnig til handa
verzlunarfólkinu út um hina dreifðu byggðir lands-
ins.
UNGA FÓLKINU, sem nú sækir t. d. VERZLUN-
ARSKÓLA ÍSLANDS, á að kynna þessi viðfangs-
efni með því t. d. að láta því í té fjölritaðar þýð-
ingar á íslenzku af fyrirlestrunum og að fela síðan
kennurum skólans í hagfræði, vörufræði o. fl. að
ræða nánar efni þeirra.
VERZLUNARMANNAFÉLÖGIN ÚTI UM LAND
ættu einnig að fá eintök af fyrirlestrunum til dreif-
ingar meðal félaga sinna. Þó væri enn betra og
árangursríkara, ef VERZLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKUR, Verzlunarráð íslands og Iðnaðar-
málastofnun Islands, svo nokkrar stofnanir og fé-
lagasamtök séu nefnd, tækju sig saman um að
fá hæfa menn úr höfuðstaðnum, sem reynslu hafa
í ýmsum greinum verzlunar eða eru sérmenntaðir
á sviðum viðskiptalífsins, til þess að heimsækja
félög verzlunarmanna og kaupmanna úti um land
og halda þar námskeið eða fyrirlestra. Myndi slíkt
örfa verzlunarstétt dreifbýlisins til framtaks og um-
bóta og breyta verzlunarháttum alþjóð í hag. —
Verzlunarstéttin er á réttri leið. Hún þarf að stíga
fleiri spor í sömu átt.
Skarð fyrir skildi
Friðþjófur Ó. Johnson forstjóri í Reykjavík
lézt 24. ágúst s.l. eftir að hafa háð langa og
stranga baráttu við þann sjúkdóm, er dró hann
til bana.
Friðþjófur fæddist 17. marz 1909, sonur Ólafs
stórkaupmanns Johnson og konu hans, Helgu
Thorsteinsson. Naut hann góðrar menntunar í
æsku, bæði 'hér heima og erlendis.
Snenuna hneigðist hugur Friðþjófs að verzl-
un, og tvítugur að aldri hóf hann að starfa við
fyrirtæki föður síns, O. Johnson & Ivaaíber. Þeg-
ar fyrirtækið var gert að hlutafélagi, árið' 1936,
varð Friðþjófur einn af framkvæmdastjórum fé-
iagsins. Gegndi hann því starfi, þar til hann varð
frá að hverfa fyrir nokkrum mánuðum sökum
vei'kinda.
Segja má, að fáir menn hafi markað jafn djúp
spor í þróunarsögu Veerzlunarmannafélags
Reykjavíkur og Friðþjófur Ó. Johnson. Arið'
1939 var hann fenginn til að taka að sér for-
mennsku í félaginu og með því hófst nýtt við-
reisnartímabil í sögu þess. Býr V. R. enn og
mun búa um langan aldur að því ötula og óeig-
ingjama starfi, sem hann vann í þágu þess. Þeg-
ar Friðþjófur lét af formennsku eftir þrjú ár,
hafði hagur félagsins vaxið til mikilla muna og
öll starfsemin fengið nýtt líf. Bar hann alla
tíð hag V. R. fyrir brjósti og var ávallt hinn
traustasti félagi. Vegna liinna miklu starfa lians
í þágu félagsins ákvað' stjóm og heiðursfélaga-
nefnd fyrir þrem árum að gera Friðþjóf að heið-
ursfélaga V. R.
Friðþjófur var mikill áhugamaður um flug-
mál. Hann átti sæti í stjórn Flugfélags Islands
í mörg ár og átti drjúgan þátt í uppbyggingu
þess félags. Þá var hann skipaður í nefnd árið
1950, sem endurskoða átti bankalöggjöf lands-
ins.
Enda. þót Friðþjófur léti ekki mikið á sér bera
opinberlega, þá er það auðsætt, að hann hefði
verið hvarvetna vel til forystu fallinn. Er því
öllum, er þekktu og kynntust Friðþjófi, sár
harmur að fráfalli hans í blóma lífsins.
Hinir mörgu vinir hans og félagar í V. R.
samhryggjast eiginkonu hans, Ágústu og börn-
unum tveim, Rafni og Þóru. Þeir þakka Frið-
þjófi ómetanlegt starf í þágu félagsins um leið
og minningin um góðan dreng er geymd en ekki
gleymd.
134
frjáus vrcnzLUN