Frjáls verslun - 01.08.1955, Side 23
Friðþjófur
Ó. Johnson
Kveðja
frá
VR.
Friðþjófur Ó. Johnson er látinn.
Um leið og ég kveð hann í nafni Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, nota ég þetta tækifæri
til að kveðja persónulegan vin minn og kæran
skólabróður.
Friðþjófur var víkingur að öllu því, er hann
gekk til. Hann helgaði félaginu starfskrafta sína
um langt skeið. Það var gæfa V. R.
Þótt Friðþjófur hafi dáið fyrir aldur fram, þá
markaði hann spor sín svo í sögu Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur, að þau verða seint af
máð. Hann hafði forystu um ýmis framfaramál í
sögu félagsins og lagði grundvöll að fjárhagsaf-
komu þess, enda bera heimkynni V. R. þess ótví-
rætt vitni í dag. Þá hafði hann og forystuna að
stofnun tímarits félagsins, „FRJÁLS VERZLUN",
sem um langan tíma var eina málgagn verzlun-
arstéttarinnar hér á landi.
Þann 13. nóvember 1953 voru honum þökkuð
störfin í þágu félagsins með því, að hann var ein-
róma kjörinn heiðursfélagi V. R., og er hann yngst-
ur að árum þeirra, er hlotið hafa þá viðurkenn-
ingu.
Kæri vinur. Við þökkum þér störfin í þágu fé-
lagsins og biðjum þér allrar blessunar. Geymum
minningu þína sem góðs drengs, er öllum vildi
gott gera.
Far þú í friði. Guð blessi minningu þína.
Innilegar samúðarlrveðjur sendum við ástvinum
þínum.
Guðjón Einarsson.
Fundum okkar Friðþjófs Ó. Johnson bar fyrst
saman fyrir um það bil tuttugu árum síðan. Þá
urðum við samstarfsmenn í nokkur ár, bæði í
stjóm V. R. og ýmsum þeim nefndum, sem starf-
andi vom í félaginu.
Strax við fyrstu kynni mín af Friðþjófi fékk ég
óbilandi traust á honum og það traust brást ekki,
hann var alltaf jafn ömggur og úrræðagóður í
hverju máli, og það sem alveg sérstaklega gerði
hann aðlaðandi, var Ijúfmennska hans og hin tak-
markalausa lipurð til þess að leysa öll vandamál
með góðvilja og sanngimi.
Vinátta sú, sem myndaðist okkar á milli á þess-
um árum, hélzt alla tíð eftir það, og ég tel það
gæfu fyrir mig að hafa kynnzt slíkum mannkosta-
manni sem Friðþjófi Ó. Johnson.
E. G.
Fn.TÁLS VERZLUN
135