Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 27
tímabilí, sem hér um ræðir, nær hann hæstri tölu árið 1896, 60.413.5) Verðmæti þessa útflutnings nam 285 þús. kr. árið 1880, þ. e. bæð'i hrossa og sauðfjár, en verðmæti sauðfjárms eins 554 þús. kr. árið 1890. En þessi fjárhæð er orðin kr. 810.677 árið 1896. III Hinn 16. maímánaðar 1870 kemur til lleylcja- víkur kaupfarið „John & James“, 71.25 t., með lcol til E. Siemsens og til hestakaupa, en 22. júnimánaðar árið eftir gufuskipið „Yarrow“, 251.97 t., með kol frá Granton (Leith) á Skot- landi til E. Siemsens og til hrossakaupa. En Hay nokkur hafði „í félagi með Mr. Slimon frá Leith“ árið áður (1870) keypt hross til útflutnings. Nú (1871) koniu tveir ungir Skotar og keyptu um 70 hross á 10—12 spesíur hvert. Slimon sjálfur kom á „Yarrow“ og fékk rakað saman um 300 hrossum. En 21. júlímánaðar kemur „Ya,rrow“ aftur með kol, en fór með 312 hross, í þriðja sinn 15. ágústmánaðar.0) Skipstjórinn í öll skiptin hét Coghill. — Jolin Coffhill var skozkur maður að þjóðerni og var skipstjóri, áður en hann kom hingað til lands. Mjög lítið hefir á honum borið í ættlandi hans, en hér á landi þekkti hann að kalla hvert mannsbarn, áður en lauk, „ýmist að sjón og reynd eða þá afspurn, — þekkti hann að vask- leik, hreinskiptni og drengskap“.7) Hann kemur í upphafi við hrossaútflutning, en síðar eink- um sauðfjársölu íslendinga til Bretlands um fjórðung aldar. Á hann því veigamikinn þátt í viðskiptum Islendinga og Breta. IV Þeir Daníel Daníelsson, dyravörður í stjórn- arráðinu, og Thor Jensen skýra báðir frá dvöl og athöfnum Coghills, „hins góðkunna sa.uða- kaupmanns“, hér á landi, einkum þó viðskipt- um hans í Húnavatnssýslu. Auk þess skýrir Thor Jensen fyrst frá „harða vorinu“ 1882, en getur svo Coghills og persónueinkenna hans sem Daníel. Nokkuð er minnzt á Coghill í frásögn Jóns L. Hanssonar af hvalrekanum á Ánastöð- um í sömu sýslu vorið 1882. (Lesbók Mbl., XIV. árg.). Víðar getur Coghills eitthvað. -----o---- Þeir Slimon og Coghill, sem var erindreki hans, ferðuðust um landið og héldu fjármark- aði. Árið 1882 keypti Coghill t. a. m. yfir 2Ö þúsund fjár á Norður- og Vesturlandi. „Þegar mikið markaðsfé barst til Cogliills á einn stað, lét hann oft flokka leð eftir aldri í réttir eða stíur. Gekk liann síðan um stíurnar og greip ofan í spjaldhrygginn á kind og kind, leit yfir safnið og gerði síðan ákveðið tilboð í hópinn“.8) Hafi verið örðugt að fá það verð hækkað. En Coghill borgaði út í hönd með ensku gulli og silíri. Reiddi hann gull- og silfurpeninga í járn- koffortum, og heyrðist skröltið í þeim langar leiðir, þegar hann rak hesta í loftinu. Kvað margur bóndinn liafa átt meir en vettlingstotu af gulli eftir nokkrar ferðir Coghills og Slimons um landið, — „og það mátti segja, að varla sæist önnur rnynt í uiníerð um þær rnundir en gull. Sauðfé greiddu þeir ágætlega, en tiltölu- lega minna fyrir hesta . . .“.9) Jón L. Hansson segir, að Coghill hafi um haustið 1882 gefið 20 kr. fyrir sauði, en 12—14 kr. fyrir veturgamalt og lambgotur. En Thor Jensen kveður hann hafa gefið „á þessum árum“ (unr 1882) 16—18 kr. íyrir fullorðna sauði, „þolanlegt verð“, en „eng- in höfðingsborgun, þegar féð lagði sig á 50—60 pund“.10) Sanrkvæmt landshagsskýrslum er verðið á hverri sauðkind árin 1880—1882 incl. 10—20 kr., hæsta verðið 1882 er kr. 17.16.11) Coghill var fjölmennur, þegar hann fór unr sveitir á haustin. Þurfti hann víð'a að korna á skömmum tírna og „reið rnanna harðast, en hafði einatt nrarga hesta til reiðar og skipti oft um hesta; að öðrurn kosti hefði hann sprengt þá“.ia) Fylgdarmaður hans fyrir norðan, aðal- aðstoðarmaður og umboðsmaður, var Pétur Kristófersson, bóndi á Stóru-Borg. Hafði hamr verið í Skotlandi og talaði því ensku. En sunn- anlands voru Coghill til aðstoðar við hrossa- og sauðfjárkaup þeir Guðmundur Þórðarson frá Hól og synir hans, t. a. nr. Jóharrn. Eignaðist Coghill rnarga góðkunningja hér á landi og skulu nefndir til viðbótar þeir Andrés á Hvítárvöllum og Þórður á Leirá. Thor Jensen segist hafa séð hann oft, meðan hann var á Borðeyri, enda gisti Coghill ævinlega hjá Daníel á Þórodds- stöðunr, þegar hann fór unr Hrútafjörð, og var þar oft langvistum. V Fjárkaupmaðurinn Coghill var „hvarvetna a.ufúsugestur“. Geta nrá nærri, 'hvort bændur hafi ekki orðið upprifnir af konru hans og við- FRJÁLS VERZLUN 139

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.