Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 30
VERZLUN
HARALDAR ÁRNASONAR
40 ára
Ein elzta og þekktasta verzlun Reykjavíkur
átti 40 ára starfsafmæli 1. sept. s.l. Þann da.g
fyrir fjórum áratugum hóf Haraldur kaupmaður
Árnason verzlunarrekstur sinn. Keypti hann
vöubirgðir vefnaðarvöruverzlunar Th. Thor-
steinssonar, en hafði áður annast verzlunarstjórn
þeirrar verzlunar um nokkurt skeið.
Haraldur tók strax á unglingsárum að búa sig
undir verzlunarstörf. Fékk hann fyrst tilsögn í
bókfærslu og tungumálum um nokkra hríð, en
sigldi að' því búnu til Englands. Starfaði hann
þar við verzlunarstörf og stundaði skólanánr á
kvöldum um þriggja ára skeið. Er heim kom,
árið 1909, tók hann við stjórn verzlunarinnar
„Dagsbrún“, er þá var nýstofnuð og hafði að-
setur við Hverfisgötu.
Síðan réðist hann til Th. Thorsteinssonar og
starfaði þar, unz hann stofnsetti sína eigin verzl-
un, eins og fyrr greinir. Var Haraldur þá aðeins
29 ára að aldri. Haraldur starfrækti verzlun sína
fyrsta mánuðinn á sama stað og verzlun Th.
Thorsteinssonar í Hafnarstræti 4, en í október-
byrjun 1915 flutti hann verzlunina í Austur-
stræti 22, hús gamla prestaskólans, þar sem hún
er enn í dag til húsa.
Hinn ungi, faglærði verzlunarmaður veitti
nýju lífi og fjölbreytni inn í verzlunarháttu bæj-
arins, og vakti verzlun hans mikla athygli fyrir
smekkvísi, lipurð' og stjórnsemi.
Verzlun Haraldar Árnasonar dafnaði jafnt og
þétt, enda þótt allskonar viðskiptahöft gerðu
kaupmönnum oft á tíðum erfitt um vik. Hann
má telja frumkvöðul að því að opna augu al-
mennings fyrir góðum varningi, og með vöru-
vöndun sinni á fatnaði kenndi hann mönnum
beinlínis smelcklegan og góðan klæðaburð.
Fyrstu árin var einungis um smásöluverzlun
að ræða, en síðan einnig beildsölu, og á árunum
1942—43 greindist verzlunin í tvö fyrirtæki,
Haraldarbúð h.f. annars vegar og Haraldur
Árnason, heildverzlun h.f. hins vegar. Er starf-
semi þessara beggja. fyrirtækja að mestu rekin
á sama stað og hún upprunalega var, Austur-
stræti 22 og Lækjargötu 2, en þar er þegar fyrir
löngu orðið mjög þröngt fyrir dyrum og athafna-
riím lítið.
Haraldur Árnason andaðist 8. okt. 1949, og
var hverjum manni harmdauði, sem til þekkti.
Hann gegndi miklum fjölda trúnaðarstarfa,
bæði í þágu þess opinbera. og fyrir stétt sína.
Var hann framúrskarandi húsbóndi starfs-
manna sinna. Fjöldi manna hefur frá unga aldri
alizt upp við verzlunarstörf í fyrirtæki hans og
aldrei horfið þaðan á brott.
Verzlun Haraldar Árnasonar 'hefur frá upp-
hafi haft á sér það orð, að vöruvöndun og lipur
og góð þjónusta sitji var ávallt í fyrirrúmi, enda
hefur þangað valizt. gott starfsfólk, og forráða-
menriirnir sj'álfir gert kröfu til þess eins og
sjálfra sín, að sýna viðskiptamönnum lipurð og
prúðmennsku.
Þetta hefur átt sinn ríka þátt í því, að skapa
verzluninni vinsældir og traust, ekki aðeins í
Revkiavík. heldur og um land allt.
FRJÁLfi VFRZLTJN óskar þessu vinsæla
verzlunarfvrirtæki allra heilla. á 40 ára afmælinu
os þakkar þann skerf, sem það hefur lagt af
mörkum til bættra verzlunarhátta á þeim fjór-
um áratugum, sem það hefur starfað hér í borg.
142
FltJAUS VERZLUN