Frjáls verslun - 01.08.1955, Blaðsíða 31
Austin - bifreiðaverksmiðjumar
— 50 ára —
Eitt stærsta og þekktasta bifreiðaframleiðslu-
fyrirtæki Bretlands, The Austin Motor Com-
pany, átti 50 ára afmæli 9. júlí s.l. Austin-bif-
reiðar eru vel þekktar hér á landi og hafa ekið'
um íslenzka vegi áratugum saman, en þær er
annars að finna í öllum löndum heims. Bifreiða-
tegund þessi hefur hvarvetna reynzt hið bezta,
þótt öruggar, sparneytnar og sterkar.
Stofnandi verksmiðjanna, Herbert Austin, var
fæddur 1866. Aðeins 16 ára. að aldri fluttist
hann til Ástralíu, lærði þar vélfræði og vann í
ýmsum vélsmiðjum um nokkurra ára skeið. Til
Englands hélt Herbert Austin aftur 27 ára að
aldri, og árið 1895 smíðaði hann fyrstu bifreið-
ina, þriggja hjóla vagn. Fleiri bila smíðaði hann
á næstu árum, og árið 1905 stofnaði hann sitt
eigið fyrirtæki og hóf framleiðslu bíla. Þau far-
artæki voru þá enn í bernsku og þóttu ýmsum
þau harla viðsjárverðir gripir í fyrstu.
Efnin voru af skornum skammti og því allt
í smáum stíl. Fyrsta árið unnu í verksmiðjunni
í Longbridge, þar sem hún var staðsett og er
enn, 250 manns og fra.mleidd voru 120 ökutæki,
mestmegnis bifreiðar.
Fyrirtækið óx ár frá ári og komst fljótt í
fremstu röð brezkra bifreiðaframleiðenda. Nýjar
og nýjar gerðir af Austin-bifveiðunum komu fram
á markaðinn, er árin lið'u. Herbert Austin breytti
þó aldrei útliti eða gerð bifreiðanna að ástæðu-
lausu, heldur aðeins þar sem það var hagkvæm-
ast og brýn nauðsyn bar til. Sjálfur va.r hann
mikill uppfinningamaður og átti um 180 skráð
einkaleyfi. Árið 1930 framJeiddu verksmið'jurnar
1000 farartæki á viku hverri og gerðin Anstin
seven var orðin vinsælasta. bifreiðin í heiminum.
Var Herbert Austin skömmu seinna aðlaður fyrir
störf sín og atorku í bágu brezka bifreiðaiðnað-
arins og gerður að barón.
f heimsstyrjöldunum báðum unnu verksmiðj-
urnar að framleiðslu hergagna fyrir brezku
stjórnina. Gerð voru ógrynni af skotfærum,
skriðdrekahlutum og sprengjuflugvélum, auk
allra ökutækjanna í þágu hersins.
Stofnandi verksmiðjanna, Austin lávarður,
lézt 1941, og fjórum árum seinna tók núverandi
framkvæmdastjóri, Sir Leonard P. Lord, við
stjórn Austin-verksmiðjanna.
f dag eru Austin-bifreiða.verksmiðjurnar
orðnar að risastóru iðnfyrirtæki, sem hefur
blómgazt og vaxið með hverju árinu, sem liðið
hefur, og borið brezkum iðnaði gott vitni á er-
lendum vettvangi.
Verksmiðjurnar smíða. nú meir en 120 bifreið-
ar á hverri klukkustund og starfsmenn eru yfir
20 þús. að tölu. Fram að fimmtugsafmælinu hafði
verksmiðjan framleitt 2.320.000 bifreiðar og
önnur ökutæki. Sézt glöggt af þessu, hve fyrir-
tækið er orðið mikið að vöxtum á þessari hálfu
öld, sem það hefur starfað.
^■«(8)»^—-----
riðsk iptasamningur
íslands og Kúpu
Hinn 3. okt. var undirritaður í Washington
viðskiptasamningur milli fslands og Kúbu, þar
sem bæði löndin skulbinda sig til að veita hvort
öðru beztu kjör, sem þau veita öðrum löndum,
að því er snertir tolla og önnur aðflutningsgjöld
af vöruinnflutningi frá hinu landinu.
í samningnum er ennfremur gert ráð fyrir,
að íslendingar kaupi strásykur og nokkrar aðrar
vörur frá Kúbu, en selji þangað saltfisk, lýsi og
fleiri afurðir.
Flt J ÁLS VERZLUN
143