Frjáls verslun - 01.04.1962, Qupperneq 10
markaðinum og útvegar hún það, þegar engir sér-
stakir örðugleikar cru fyrir hendi“.
Þessir sérstöku örðugleikar virðast löngum hafa
verið fyrir hendi, þar sem Viðtækjaverzlunin hefur
jafnan verið mjög ófús til að uppfylla óskir út-
varpsnotenda í þessu tilliti. Þar hcfur skömmtunar-
og landsföðurhugsjónin ætíð orðið ofan á og öllum
sérstökum óskum oftast vísað á bug, enda ekki
þýðingarmikið markmið að þjóna viðskiptavinum
stofnunarinnar og öðrum útvarpsnotendum.
Það kann að vera réttlætanlegt, að ríkið hafi
einkasölu á lyfjum og áfengi, en það er engan
veginn réttlætanlegt, að ríkið hafi einkasölu á við-
tækjum. Þar hefur það engin skilyrði til að veita
þá þjónustu útvarpsnotendum til handa, sem óhjá-
kvæmilegt er, að sé fyrir hendi, ef vel á að fara í
þessari grein viðskipta.
Viðtækjaverzlun ríkisins hefur aldrei veitt út-
varpsnotendum í landinu neina þjónustu að ráði.
Viðgerðarstofu útvarpsins var ætlað að veita nauð-
synlega þjónustu vegna viðhalds og viðgerða við-
tækja Iandsmanna. Ríkisútvarpið hcfur nú gefizt
upp á rekstri Viðgerðarstofunnar eftir stórkostleg-
an taprekstur um langt árabil. Ríkisútvarpið sjálft
veitir heldur enga ])jónustu á þessu sviði, enda
starfssvið þess allt annars eðlis. Reynslan hefur
sannað, að cinkaframtakið eitt befur skilyrði til
að láta í té þá þjónustu, sem útvarpsnotendur óska
eftir í sambandi við viðhald og viðgerðir viðtækja
og skyldra tækja.
Viðtækjaverzlun ríkisins á að hverfa úr við-
skiptalífi þjóðarinnar og fáir munu sakna hennar.
Reynslan mun einnig sanna, að innflutningur og
dreifing viðtækja og hluta til þeirra er bezt borgið
í höndum einkaframtaksins í landinu, því óhætt er
að fullyrða, að einkafyrirtæki gætu boðið viðtæki
frá viðurkenndum framleiðendum á fyllilega sam-
bærilegu verði við verð það, sem er á viðtækjum
frá Viðtækjaverzluninni, cn varahlut.i og viðgerðar-
efni jnundu þau geta boðið á mun lægra verði en
nú er á þeim vörum hjá Viðtækjaverzluninni, mið-
að við gildandi verðlagsákvæði, sem þau verða að
hlíta. Enn fremur mundu þau bjóða upp á mun
betri þjónustu en Viðtækjaverzlunin veitir, eins og
þau verzlunarfyrirtæki, sem verzla með margs konar
heimilistæki, sýna bezt, enda þótt álagning þeiría
sé allmiklu lægri en verzlunarálagning Viðtækja-
verzlunarinnar.
Það verður því aðeins séð fyrir þörfum og hags-
munum íslenzkra útvarpsnotenda, hvað tækjakost
og viðhald snertir, að Viðtækjaverzlun ríkisins verði
lögð niður. Með því móti verða enn fremur bezt
tryggð hagkvæmust útvarpsnot í þágu menningar
þjóðarinnar.
Vilhjcdmux H. Vilhjctlmsson:
Hvað sparasf ríkis-
sjóði við samein-
ingu Áfengis- og
tóbakseinkasölu
ríkisins!
Þegar farið var þess á leit við mig, að ég segði
hér nokkur orð um Tóbakseinkasöluna sálugu eða
Tóbaksverzlun ríkisins, eins og hún heitir nú end-
urreist, varð mér það ljóst, að ég hafði hvorki að-
stöðu né tíma til að gera því máli þau skil, sem
skyldi, sérstaklega vegna skorts á gögnum um
reksturinn undanfarið, svo og hins, að hið nýja
fyrirtæki — Áfengis- og Tóbaksverzlun ríkisins —
er fyrir svo stuttu tekið til starfa, að lítil reynsla
hefur fengizt fyrir því, hvernig hið nýja fyrirkomu-
Iag gefst. Það eina sem ég man eftir í bili að hafa
heyrt um þetta opinberlega, er að fjármálaráð-
herra lýsti því yfir, að fækkað hefði verið um 11
starfsmenn, er sameiningin átti sér stað.
Mér fannst það skylda mín sem stuðningsmanns
stjórnarinnar að reyna að leggja liönd á plóginn
og styrkja hana í þeirri viðleitni, sem hún hefur
marglýst yfir og sýnt, að hún vill sparnað í opin-
berum rekstri, ef verið gæti, að liægt væri að benda
á leið til sparnaðar í þjóðarbúinu, þó þannig að
þjónustan við almenning minnkaði ekki frá því,
sem hún nú er. Þær eru orðnar margar áskoranirnar
til ríkisstjórna undanfarinna ára frá Verzlunarráði
íslands, Félagi ísl. stórkaupmanna, iðnrekendum,
kaupmannasamtökunum og mörgum öðrum félögum
um að leggja niður eitthvað af einkasölum og ýmsum
ríkisfyrirtækjum, en litill árangur náðst, þar cð
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki haft þingmeirihluta
til að koma þeim málum fram þrátt fvrir góðan
10
FRJÁLS VERZLUV