Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 23
Athafnamenn og frjálst framtak J)
Haraldur Böðvarsson
Haraldur Böðvarsson er fœdd-
ur 7. maí 188!) á Akranesi. Voru
foreldrar hans Böðvar Þorvaldsson
kaupmaður og útgerðarmaður þar,
og kona hans Helga Guðbrands-
dóttir, dóttir Guðbrands Stur-
laugssonar bónda í Hvítadal. Ilug-
ur Haralds snerist snemma að
útgerð, og fór hann í róðra ung-
ur að aldri með húskörlum föður
síns. Fimmtán ára var hann á
skozkum togara, sem fiskaði hér
við land. Sautján ára hóf hann
fyrst útgerðarrekstur með því að
kaupa sexæring, og tveim árum
síðar keypti hann fvrsta vélbát
sinn. Var hann 8 lestir að stærð
og hét Höfrungur. Gerði hann bát
þennan fyrst út. frá Vogavík undir
Stapa, en síðar frá Sandgerði.
Því miður er of langt mál að
rekja þróun fiskiskipanna, sem
Ilaraldur Böðvarsson hefur gert
út, allt upp í hin stóru glæsilegu
skip, sem hann gerir nú út, þótt
það gæfi betri mynd en annars
er unnt að gefa af þróun þessa
atvinnuvegar í höndum áræðins
og framsýns manns. En það er
ekki nóg að ná í aflann, cngu
minna máli skiptir meðferð hans
þar eftir.
Til þess að nýta afla báta sinna
byggði Haraldur fiskvinnslustöðv-
ar á Akranesi og í Sandgerði. Fisk-
vinnslustöðvarnar á Akranesi og
í Sandgerði, en liina síðarnefndu
keyptu tveir af starfsmönnum
Haralds síðar, hafa nú vaxið í það
að vera með þeim stærstu hér á
landi.
Fiskvinnslustöð Haralds á
Haraldur BöSvarsson
Akranesi er án efa sú fjölbreytt-
asta og myndarlegasta sem hér er
til. Þar er aflinn verkaður í fryst-
ingu, söltun, herzlu og niðursuðu,
þótt skilyrði fyrir síðastnefndu
vinnslunni séu varla til hér á
landi. Auk þess fylgir rekstrinum
verkstæði, nótaverkstæði og fleira,
því að „margs þarf búið með“.
Á árunum 1910—1924 rak Har-
aldur heildverzlun og skipaaf-
greiðslu í Björgvin í Noregi í fé-
lagi við Norðmenn þar í borg.
Þcgar Bretar settu löndunar-
bannið á íslenzku togarana 1952,
brá Haraldur við, keypti 500
skreiðarhjalla, tók við afla fjölda
togara og verkaði fyrsta árið 765
tonn af skreið.
í mörg ár hefir Haraldur leitazt
við að sannfæra landa sína um
það, hvílík gullnáma Faxaflóa-
síldin er. Hefir þetta verið þung-
ur róður, en nú virðast þó augu
manna vera að opnast fyrir því.
Haraldur var forgöngumaður um
vinnslu karfa í frystingu.
1 öllum þessum framkvæmdum
hefir Ilaraldur notið öruggs stuðn-
ings sonar síns Sturlaugs, og eins
þeirra manna, sem til hans hafa
valizt, en flestir þeirra hafa verið
við fyrirtæki hans tugi ára. í dag
gera þeir feðgar út 12 báta og eru
flestir þeirra ný, stór skip, útbúin
öllum beztu tækjum, sem í dag
þekkjast.
í Vinnslustöðinni vinna að jafn-
aði 400—500 manns og er vert
að geta þess, að á fáum stöðum
mun sambúð atvinnurekenda og
verkafólks betri en þar.
Haraldur kvæntist 6. nóvember
1915 Ingunni Sveinsdóttur, Guð-
mundssonar hreppstjóra og kaup-
manns á Akranesi, og eiga þau
tvö börn, Sturlaug og Ilelgu.
Haraldur hefir gegnt mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Akranes-
kaupstað. Hann hefir gefið kaup-
staðnum bæði kvikmyndahús og
aðrar stórgjafir.
f >
Til lesenda
Frjálsrar Verzlunar
Þetta tölublað Frjálsrar
Verzlunar er síðbúnara en ætl-
að hafði verið, og eru lesendur
beðnir velvirðingar á þeim
drætti, sem orðið hefir á út-
komunni. Jafnframt því, scm
þetta er bætt að nokkru með
því, að þetta hefti er efnis-
meira en ella hefði orðið, er
óhætt að heita lesendum þvi,
að útkoma næsta lieftis verði
hraðað sem verða má.
^____________________________>
FR.TÁI.S VERZLUN
23