Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 15
inga hingað til lands hafa að vísn aukizt á undan- förnum árum og má segja að það hendi í rétta átt, en sú aukning er ekki tilkomin vegna Fcrðaskrif- stofu ríkisins, heldur þrátt fyrir tilveru hennar. Eitt sinn var spurt: Hvað má nú til varnar verða vorum sóma? í þessu máli aðeins eitt: afnám Ferðaskrif- stofu ríkisins, en í hennar stað kæmi stofnun, Ferða- málaráð, sem hefði á hendi yfirumsjón allra ferða- mála, en öll fyrirgreiðsla við erlenda ferðamenn væri í höndum einstaklinga sem til þess eru taldir hæfir. Þannig er málum skipað í dag í öllum Norð- urlöndum og víðar. Frumvarp um slíka stofnun var flutt á Alþingi 1954 af fjórum Sjálfstæðismönn- um. Þetta frumvarp hcfur mikið verið rætt af áhugamönnum um ferðamál, og að því er ég bezt veit, telja allir það beztu lausn á málinu sem hingað til hefur verið sett fram. En það fór um þetta frum- varp eins og allt sem fram hefur komið á Alþingi og snertir afnám eða skerðingu einokunar Ferða- skrifstofunnar — jafnaðarmenn brugðu fæti fyrir það. 1 dag stöndum við enn í sporunum frá 1936 um allt sem viðkemur ferðamálum. Þau spor hræddu þá — þau hræða enn. Meðan svo heldur fram sem nú er, er ein atvinnugrein, sem gæti gefið arð þjóð og landi, í fjötrum — það dregur kjark úr mönnum að hugsa með hengingaról um hálsinn. Ég hcf farið fljótt yfir sögu, ég hef ekki viljað þreyta ykkur með löngu máli, ég hef sett málið fram þannig að verið gæti umræðugrundvöllur. Niðurstaða mín verður þessi: Við liöfum tækifæri til að fá hingað crlenda ferðamenn sem færa erlendan gjaldeyri í þjóðarbú- ið, til þess að svo megi verða þarf margt að bæta, en umfram allt verða einstaklingarnir að fá svig- rúm til athafna. Einokun Ferðaskrifstofu ríkisins er fjötur um fót einstaklingunum, en hún er einnig að öðru leyti til skaða og álitshnekkis út á við. Þess vegna: leggjum Ferðaskrifstofuna niður. Byggj- um frá grunni öll ferðamál landsins, komum á lagg- irnar Ferðamálaráði samkvæmt frumvarpi Sjálf- stæðismanna frá júni 1954. Ljósapera og borðplata eru eitt og hið sama ó borðinu, sem sýnt er ó myndinni, en hún er tekin í veitingasal, sem er í nýrri byggingu stórblaðanna bandarísku, Time og Liie. Glerþynna, sem er borðplatan, er iyrst þakin himnu af eíni, sem leiðir ralmagn, en síðan cr hún roðin fosióri. Þegar rafmagn er leitt í borðplötuna, tekur hún að lýsa. eins og sjó mó ó myndinni. Það er einn kosturinn við þessa skemmti- legu lýsingu, að rafmagnsnotkunin er lítil, og ekki er um neina þræði að ræða. sívalninga eða gastegundir, og mjög litill hiti myndast. Slíkar glerþynnur þykja tilvaldar í hillur, veggplötur og til ýmissa annarra nota. Þær fóst í ýmsum litum og endost 750 klukkustundir. FllJALS VERZLUN 15

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.