Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 22
(þeim elzta), og brann mestur hluti þess þar 1944.
Hefir það skarð verið bætt að miklu. Bókavörður
hefir lengst af verið Sveinbjörn Oddsson, og má
segja, að vöxtur og viðgangur safnsins sé hans verk
fyrst og fremst.
Ymis félög vinna og hafa unnið að menningar-
málum. Lengst þeirra allra mun Góðtemplararegl-
an hafa starfað.
Ekki verður svo skilizt við ritsmíð þessa, að ekki
sé minnzt þess mannsins, er framar öðrum hefir
unnið að því að bregða ljósi á sögu byggðarinnar
á Skipaskaga, Ólafs B. Björnssonar, ritstjóra. Þótt
honum entist ekki aldur til að ljúka hinu mikla
verki sínu um sögu Akraness, niunu þau tvö bindi
sögunnar, sem út komu, og ritgerðir hans í blaði
hans, Akranesi, um langan aldur halda nafni hans
á lofti. Munu ritverk hans jafnan talin grundvallar-
rit um sögu Akraness. Við rit Ólafs hefi ég stuðzt
mikið við samningu þessarar greinar.
Landareign Skipaskaga náði áður fyrr aðeins yfir
fremstu tá nessins, sem Akraneskaupstaður stendur
á, og svo var og um laud verzlunarstaðarins um
langan aldur. En í árslok 1929 var mestur hluti
Garðalands keyptur og árið 1947, það, sem eftir
var, og því bætt við kaupstaðarlóðina, sem fyrr
segir, svo að nú má heita, að Akraneskaupstaður
eigi landrými nokkurt og vaxtarrúm. íbúar kaup-
staðarins voru 3932 um síðustu áramót, og hefur
fjölgun verið hægari síðustu árin en t. d. 1950—
1956.
I upphafi greinarkorns minntist ég þess, að Akra-
nes hillir oft upp, þegar horft er yfir Flóann frá
Reykjavík. Sýnist þar vera borg í hafi úti. Eigi er
þó kaupstaðurinn á Skipaskaga hillingalönd ein
og fjólubláar draumaborgir. Hann byggir nú dug-
legt fólk og framgjarnt, svo sem knattspyrnumenn
Aknrnesinga hafa sýnt og sannað. Hann byggir nú
athafnasamt fólk, sem lætur hvergi sinn hlut eftir
liggja í sókn þjóðarinnar til betri lífskjara og auk-
innar mcnningar.
Samkeppnin á öllum sviðum fer ört vaxandi með aukinni
tækni í öllum efnum, og gott dæmi um nýja nýtingu hráefnis
eru hattarnir, sem stúlkurnar á myndinni eru með á höiðinu.
Þeir eru nefnilega úr pappír, sem hefir fengið sérstaka með-
höndlun.
Þar með má segja, að úr sögunni sé, að pappír sé aðeins
til að skrifa og prenta á — eða til að vefja utan um dauðan
vaming. Honum má sem sé breyta í fyrirtaks-„umbúðir" handa
kvenfólkinu, og það er svo sem sitthvað fleira, sem hann er
tilvalinn í. Innkaupataskan, sem konan til vinstri á myndinni
heldur á handleggnum, er einnig úr pappír, og sama máli
gegnir um netið, sem hangir á veggnum.
Hlutir þessir voru allir til sýnis í sambandi við ársþing
bandarískra pappírsframleiðenda, sem haldið var í New York
ekki alls fyrir löngu, þar fengu menn að sjá níðsterkt garn,
sem gert var úr pappír, er fengið hafði sérstaka meðhöndlun.
Garn þetta er svo endingargott, að hægt er að sjóða það, þvo
eða þurrhreinsa 30 sinnum, án þess að það láti á sjá eða
slitni.
22
FR JÁI.S VERZLUN