Frjáls verslun - 01.04.1962, Blaðsíða 43
Afangar
L__________j
Á...........J
\____________^
fíjörn Jóhannsson hefir fyrir
skeminstu verið ráðinn ritstjóri
nýs dagblaðs, sem verið hefir í
undirbúningi hér í borg upp á
síðkastið og hleypt verður af
stokkunum í ágúst eða sept. Á
blað þetta að heita Myndin og'
verður fyrst og fremst fréttablað
í myndum.
Björn fæddist 20. apríl 1935 í Hafnarfirði. Hann
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1950, en að því búnu sigldi hann til Skotlands
og var þar um skcið við nám í Edinborg. Ritstjóri
Alþýðublaðs Hafnarfjarðar var hann um eins árs
skeið, en gerðist blaðamaður við Alþýðublaðið ár-
ið 1958, og hefir verið starfandi þar síðan, en hefir
sagt lausu starfi sínu frá miðju sumri til að hverfa
að hinu nýja blaði.
Högni Torjason hefir einnig
verið ráðinn ritstjóri hins nýja
blaðs — Myndarinnar. Hann er
fæddur á Isafirði 5. marz 1924,
lauk gagnfræðaprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri og starfaði
síðan hjá sendiráði Bandaríkja-
anna 1945—48, er hann gerðist
fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu
og hefir starfað þar síðan. Þá var hann fréttaritari
útvarpsins í Kaupmannahöfn 1951—52 og hefir
unnið að margvíslegu dagskrárefni í útvarpinu.
Hann hefir verið formaður Starfsmannafélags út-
varpsins, í stjórn Blaðamannafélagsins, íþrótta-
félags Reykjavíkur og varastjórn Íslenzk-ameríska
félagsins.
Már Elísson var ráðinn skrif-
stofustjóri Fiskifélags íslands í
ársbyrjun 1962. Hann er fædd-
ur á Búðum í Fáskrúðsfirði 28.
sept. 1928, sonur hjónanna Elís-
ar Þórðarsonar, skipstjóra, og
Jónu Marteinsdóttur.
Már Iauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla íslands 1949,
heimspekiprófi frá Háskóla íslands vorið 1950. Síð-
an stundaði hann nám í Englandi um þriggja ára
skeið og lauk B.A.-prófi frá Cambridgeháskóla vor-
ið 1953. M.A.-gráðu frá sama skóla fékk hann
vorið 1959. Á árunum 1953—1954 stundaði Már
framhaldsnám við háskólann í Kiel.
Már Elísson hefur verið starfsmaður Fiskifélags
íslands síðan í ágúst 1954.
Njáill Símonarson hefir nýlega
gerzt framkvæmdastjóri og með-
eigandi ferðaskrifstofunnar Sögu
í Rcykjavík.
Njáll er fæddur í Reykjavík
2. nóv. 1923. Stundaði nám í
Vcrzlunarskóla Islands og braut-
skráðist þaðan 1941. Vann síðan
um skeið við skrifstofustörf og
sölumennsku unz hann fór til Bandaríkjanna í
ársbyrjun 1944. Var við nám í The University ot'
Texas í hálft fjórða ár og lauk þar B.B.A. prófi
árið 1947. Eftir heimkomuna til íslands starfaði
Njáll um tíma sem fulltrúi hjá Verzlunarráði ís-
lands, cn réðst til Flugfélags Islands í ársbyrjun
1948 og starfaði óslitið hjá því félagi sem blaða-
fulltrúi og auglýsingastjóri til 1. maí sl.
Njáll sat í mörg ár í stjórn Verzlunarmanna-
félags Rcykjavíkur, fyrst sem ritari og síðar vara-
formaður. Ennfremur átti hann um tima sæti i
ritstjórn Frjálsrar Verzlunar, og var jafnframt rit-
stjóri blaðsins í nokkur ár ásamt Gunnari Magn-
ússyni.
FRJÁLS VERZLUN
43