Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Page 5

Frjáls verslun - 01.08.1962, Page 5
Arthur Gook trúboði, sem lengi starfaði á Akureyri, skírir sóknarbarn í Eyjafjarðará sjálfsagt að stunda, er þess var kostur. Umskipti urðu þó eítir fyrri heimsstyrjöldina, því að þá fór útgerðinni hnignandi og stóð svo í meira en tvo tugi ára eða þar til síðari heimsstyrjöldin var á enda og hafizt var handa um að endurnýja togara- flota landsmanna. Akureyri, eins og fleiri bæjar- félög, fékk þá áhuga á togaraútgerð, og var ráðizt í að stofna Útgerðarfélag Akureyrar, og er það nú eitt stærsta togaraútgerðarfyrirtæki landsins, því að það gerir út fimm togara, en auk þess rekur það nýtízku hraðfrystihús. Útgerðarfélagið hefir barizt nokkuð í bökkum, eins og önnur slík fyrirtæki á undanförnum árum, og þarf ekki að rekja ástæður þess hér, en liitt leikur ekki á tveim tungum, að starfsemi þess liefir verið ómetanleg fyrir borgar- ana, og mundi mjög dauflegra um að litast í at- vinnulífi bæjarins, ef starfsemi félagsins legðist nið- ur og ekkert kæmi í staðinn. Eins og víða annars staðar á landinu hefir jafnan verið nokkur smábátaútgerð á Akureyri, en um skeið átti hún við erfiðleika að etja að vetrarlagi, þar eð smábátum var ætlað rúm við hafnarbryggj- una, þar sem þeir frusu oft inni um vetur. Nú hefir verið komið upp smábátahöfn á norðanverðri Odd- eyri, við Glerárósa, en þar var hafnargerð hafin fyrir allmörgum árum, og þar er dráttarbraut fyrir skip og báta. Þarna heíir einnig verið komið upp verbúðum fyrir smábátaeigendur, og þar er líka góð bátakví, sem eykur mjög öryggi bátanna. Ekki er þessi útvegur atvinna margra Akureyringa, en ýmsir stundar smábátaútgerð sér til skemmtunar og heilsubótar. Fólki utan Eyjafjarðar mun almennt ókunnugt um það, hvern þátt Pollurinn átti oft í öflun manna á matföngum fyrr á öldum. Hann hefir jafnvel verið nefndur „matarkista" manna í grenndinni, því að þegar hart var í ári, öll matföng upp urin, og liungur virtist blasa við, reyndist oft drjúgt tii bjargar að róa út á Polliuu og dorga. Iiefir þaðan komið margur góður bitinn. Fugl var og oft skotinn þar, en nú eru slíkar veiðar úr sögunni, því að menn gengust fyrir því fyrir eigi alllöngu, að ekki má beita skotvopnum á höfninni, svo að liún er alíriðuð að því leyti. Má geta þess í því sambandi, að hinir sömu menn og gengust fyrir friðuninni, Jakob Karlsson og Kristján Geirmundsson, báðir alkunnir dýravinir, voru einnig forgöngumenn um stofnun andatjarnarinnar í Grófargili við Sundhiill FKJALS VERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.