Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 25
Bræðumir Valdimar og Pétur Jónssynir
ekið mjólkinni úr nærsveitum og hingað inn til
Akureyrar. Svo var farið að biðja okkur um að
skreppa ferð og ferð til Reykjavíkur. Fyrsta ferðin
var farin árið 1934. Síðan jókst þetta, hægt fvrst í
stað, enda höfðum við þá ekki nema einn bíl, og
ekki gat verið neitt á þetta að treysta, fyrr en við
fengjum afgreiðslu eða samastað fyrir sunnan. Það
gerðist 1940, að Frímann í Hafnarhúsínu tók að
sér afgreiðslu fyrir okkur. Þá var fyrirtækið komið
á dálítinn grundvöll. Nú oi-ðið höfuin við 4 og 5
bíla í þessum ferðum og þeir fara 4—5 sinnum í
viku milli Akureyrar og Reykjavíkur.
— Þið hafið líklega orðið varir við einhverjar
breytingar á aðstæðum síðan þið fóruð fyrst þessar
ferðir fyrir nærri 30 árum?
— Já, blessaður vertu, það hefur margt breytzt
síðan. Það eru auðvitaö fyrst og fremst bílarnir og
vegirnir, sem hvorttveggja hefir breytzt til batn-
aðar. Fyrst komumst við ekki af með minna en
tvo daga í túrinn. Nú hefur þetta stytzt um nálega
helming. Bílarnir okkar aka hvora Ieið á 10 klukku-
stundum nú orðið. Þegar við byrjuðum að aka þessa
leið, liefði það þótt saga til næsta bæjar, að far-
þegar væru teknir með og þcir gætu fengið að sofa
í rúmi á leiðinni. En þetta gerðum við einmitt um
tíma. Við höfðum svefnvagn, gátum tekið 5 farþega
og rúm fyrir tvo þeirra. En þetta eru aðeins auka-
atriði og þægindi. Aðalatriðið er að flytja vörur á
milli landsfjórðunga, því að þörf fyrir það fer stór-
lega í vöxt með hverju ári. Þannig komast vör-
urnar fyrr sína Ieið en ella verður.
Kaupfélag EyfirSinga, Akureyri
Kaupfélag Eyfirðinga varð 75 ára á sl. sumri,
var stofnað að Grund í Eyjafirði 19. júní 1886 og
gefið nafnið Pöntunarfélag Eyfirðinga, er breytt
var árið 1906, cr fyrsta sölubúðn var opnuð, í
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri, en er almennast
nefnt skammstöfuninni KEA.
Fyrstu árin voru félagsmenn nokkrir bændur og
vinnumenn frammi í sveit, cn nú eru félagsdeildir
24 með um 5400 meðlimum. Sölubúðir á Akureyri
eru orðnar 25 og útibú utan bæjarins eru 5. Verzl-
unarveltan er um 300 milljónir króna. Fastráðið
starfsfólk hjá KEA árið 1961 var 416 að öllu með-
töldu. Launagreiðslur á árinu 1961 til fastra starfs-
manna og lausafólks nam kr. 40.159.766,99, en
félagsmönnum var úthlutað í arð af ágóðaskyldum
vörum kr. 1.580.324,58. Alls var greitt í uppbætur
á innlendar vörur kr. 26.485.017,43.
Fyrsta verzlun félagsins var í litlu timburhúsi,
en það var fljótlega stækkað, og verzlunin varð
fjölbreyttari, keypt var kjötbúð, reist sláturhús,
mjólkurbú og frystihús. Mjólkurstöðin tók fyrsta
árið á móti 1 milljón lítra, en árið 1960 14,3 millj.
lítra. Og 1929 var bvggt hið stóra verzlunarhús
við Hafnarstræti, við fjölförnustu gatnamótin í
bænum, og andspænis því var á stríðsárunum reist
hótel KEA, sem félagið rak þangað til nýverið
að það leigði öðrum hótelið til rekstrar. Af hinum
ýmsu fyrirtækjum félagsins má nefna smjörlíkis-
gerð, lyfjabúð, brauðgerðarhús, sápuverksmiðju og
kaffibrennslu. Þá hefir verið reist skipasmíðastöð
og hafin útgerð. Srníðuð hafa verið 95 ski]), þeirra
stærst Snæfell, 165 tonn. Félagið stofnaði fyrsta
útibúið á Dalvík 1920. Vann þar fyrst einn maður,
en nú eru fastráðnir starfsmenn þar 34. Síðan eru
komin útbú í Hrísey, Grímsey, Grenivik og á
Hauganesi, og eru rekin þar sláturhús, frystihús
og lifrarbræðslur, auk sölubúða.
Þeir, er lengst liafa gegnt starfi kaupfélagsstjóra,
voru Hallgrímur Kristinsson 1902—1917, Sigurður
Kristinsson 1917—23, Vilhjálmur Þór 1923—40 og
Jakob Frímannsson síðan.
f R J Á X, S VERZLUN
25