Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 16

Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 16
Það leynir sér ekki, að Amaró helir byggt af miklum stórhug Reykjavík. Enn voru færðar út kvíarnar 1957, og þá flutt í Hafnarstræti 106, og var þá cnn aukin fjölbrcytni í vöruvali. Árið sem leið (1961) var íyrirtækið selt, og voru aðalkaupendur þcir Eiríkur Stefánsson og Ágúst Ólafsson. Mörg stór og glæsileg liús hafa risið á Akureyri hin síðari ár, ekki sízt verksmiðjuhús utan við mið- bæinn. En við aðalverzlunargötu bæjarins, Hafnar- stræti, vekur fljótt athygli vegfarenda nýtt stór- hýsi, sex hæða verzlunarhús áfast við gömlu Ryels- verzlun. Þessi nýja bygging nefnist Amaró-húsið og stendur við Hafnarstræti 99. Auk stærðar Iiúss- ins verður öllurn starsýnt á búðargluggana á neðstu hæð, útstillingarnar og sjálfa Amaró-búðina. Þetta er með slíkum nýtízku glæsibrag, að mörgum finnst sem þeir séu komnir í erlenda stórborg. Fréttamaður Frjálsrar verzlunar réðst til inn- göngu og spurði eftir eiganda og forstjóra fyrir- tækisins, Skarphéðni Ásgeirssyni, og var vísað upp til hans á annarri hæð. Þar var þá staddur hjá hon- um arkitekt og yfirsmiður hússins, Stefán Reykja- lín. Var hann beðinn að Iýsa húsinu í fáum orðum, sem hann gerði í skyndi og var svo allur á brott. — Stærð hússins er 9200 teningsmetrar, mest á tveim neðstu hæðunum, sem eru 530 fermetrar. Það sérkennilegasta við hús þetta er, að það er byggt á stálsúlum, sem ekki hefir tíðkazt hérlendis áður. Mörgum sýnast þær heldur veikbyggðar, enda þver- málið aðeins 39 sm, þar sem steinsúlur eru venju- legast 60 sm. Húsið er allt mjög einfalt að allri gerð. Byrjað var á byggingunni haustið 1959, og nú þegar hafa verið teknar í notkun fjórar hæðir. Tvær eru ófullgerðar, en þar verður nú haldin hin fyrsta 16 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.