Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 21
Húsgögn frá Valbjörk á Akureyri bræður, Guðmundur og Eyþór, áttu saman. Brátt varð þetta húsnæði þó of þröngt og ófullnægjandi, og árið 1957 var hafizt handa um byggingu nýs verksmiðjustórhýsis á Gleráreyrum. Fyrsta áfanga byggingarinnar var lokið á næsta ári og verksmiðju- reksturinn þá fluttur í liina nýju byggingu. Einnig voru útvegaðar nýjar og miklu stórvirkari vélar til verksmiðjunnar, og sköpnðust þá miklu betri skil- yrði til framleiðslunnar, sem hefir farið ört vaxandi síðan. Mjög margar tegundir af kexi eru nú fram- leiddar í Lorelei, t. d. tekex, heilhveitikex, malt- kex, ostakex, kremkex margskonar, ískex og mjólk- uríshulstur. Lorelei-kex likar vel í Ameríku Framleiðslan hefir líkað svo vel, að ekki hefir verið unnt að fullnægja eftirspurn. Send hafa verið sýnishorn til útlanda, m. a. til Ameríku, og eru allir ánægðir með það, er reynt hafa. Vafalaust yrði þar nægur markaður fyrir vöruna, ef hægt væri að fram- leiða hana í svo stórum stíl, sem þarf á markað erlendis. Takmark eigenda Lorelei er að sjálfsögðu að auka cnn framleiðsluna að miklum mun, bæði að fjöl- breytni og magni til þess í fyrsta lagi að geta full- nægt þörfinni á íslenzkum markaði. Við verksmiðj- una vinna nú 20—30 manns, og útborguð vinnu- Iaun nema orðið nokkrum milljónum króna. Valbjörk orðin þjóðkunn húsgagnaverksmiðja Ein kunnustu húsgögn á markaðnum bæði norð- anlands og sunnan koma irá framleiðanda á Akur- eyri, sem er fremur ungur að árum, Húsgagna- verksmiðjunni Valbjörk hf., er stofnuð var í apríl 1953. Framleiðsla þessarar verksmiðju er fyrst og fremst húsgögn allskonar en einnig innbú í skóla, félags- heimili, gisti- og veitingahús, sjúkrahús, elliheimili o. fl. Sjálf framleiðslan fer fram í nýbyggðu verk- smiðjuhúsi að Glerárgötu 28. Einnig rekur verksmiðjan verzlun á Akureyri, í Búnaðarbankahúsinu að Geislagötu 5, líka í Reykjavík í félagi með öðrum, í híbýladeild Mark- aðsins að Hafnarstræti 5. Auk þess selur fyrirtækið framleiðslu sína til húsgagnakaupmanna um land allt. PRJÁLS VERZLUN 21

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.