Frjáls verslun - 01.08.1962, Blaðsíða 29
Haraldur Hannesson, hagiræðingur:
Nonnahús á Akureyri
Fátt er fegurra en milt síðsumarkvöld við Poll-
inn á Akureyri. Fyrir handan teygist Vaðlaheiðin
til norðurs og suðurs likt og blómofin ábreiða og
speglast í dimmbláum sjávarfletinum. Friðsæl
bændabýli og fagurgrænir töðuvellir á víð og dreif
meðfram ströndinni varpa hugþekkum blæ lifandi
starfs á umhverfið. Djúpur friður og kyrrð ríkir
yfir öllu. Beint af augum, handan við Oddeyri,
blasir Eyjafjörðurinn við, en tignarleg fjöllin gnæfa
við himin og stafa glitrandi litskrúði sínu yfir
spegilsléttan hafsflötinn. Mót suðri rennur Eyja-
fjarðará hæg og lygn í kvíslum um kjarnmikið
valllendið og gæðir ljóðrænum litblæ hinar gróður-
sælu og söguríku byggðir þar um slóðir.
Akureyri nýtur vissulega þessa fagra umhverfis,
og það hefur orkað á íbúa staðarins svo, að livcrgi
á landinu hefur verið lögð slík rækt við gróður og
hverskonar fegrun og ytri menningu en einmitt
þar. Hlýtur hver sá, sem reikar um bæinn og legg-
nr leið sína um trjágarðinn á Akureyri, að hrífast
af þeirri fegurð og þeim töfrum, sem hann býr yfir.
En Akureyringar hafa ekki einungis lagt stund
á að prýða og fegra bæ sinn. Þeir hafa jafnan og
ekki síður kappkostað að hlynna að menniirgar-
stofnunum sínum, enda hafa þær ávallt, staðið
traustum stoðum í menningarlífi þjóðarinnar. Sama
máli er og að gegna um hina sögulegu arfleifð bæj-
arins. Akureyri er flestum bæjum á Islandi auð-
ugri að minjum um merka menn og málefni, og
hafa bæjarbúar jafnan Iagt metnað sinn í að auð-
sýna öllu slíku hina mestu ræktarsemi og alúð.
Eitt er þó öðru fremur, sem setur svip sinn á
daglegt líf þeirra Akureyringa, en það er hin mikla
gróska, sem ríkir þar í öllu félagslífi. Hverskonar
félög og hópar halda uppi menningar- og skemmti-
starfsemi, og er orð á því gert, hversu mikið kapp
þeir leggi á þenna þátt félagslífsins og hversu form-
fastir þeir eru að þessu leyti. Suinum finnst fátt
um, en ekki leikur það á tveim tungum, að þetta
Nonni ó Akureyri 1930
mikla félagslyndi á hvað mestan þáttinn í því,
hversu gott er að sækja Akureyri heim, sé þar á
annað borð vinum og kunningjum að mæta. Hvergi
er vini betur fagnað og hvergi er gestrisni bet.ri og
einlægari.
Konur stofnuðu Zontaklúbb Akureyrar árið 1948.
Félagsskapur þessi er alþjóðlcgs eðlis og starfar víða
um lönd. Tilgangur hans er fyrst og fremst í því
fólginn að efla kynningu og vináttu þjóða í milli,
en hafa jafnframt. með höndum eitthvert mannúðar-
eða menningarmál, eftir því sem tilefni er til á
hverjum stað. Þegar Zontaklúbburinn var nýstofn-
aður, hittist svo á, að fyrirhugað var að rífa forn-
fálegt og hrörlegt hús innarlega í fjörunni. Þegar
betur var að gáð, kom í Ijós, að hér var um að
ræða hús það, þar sem hinn víðkunni rithöfundur
og heiðursborgari Akureyrar séra Jón Sveinsson,
Nonni, hafði átt heima á bernskuárum sínum.
FRJÁLS VERZLUN
29