Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 19
Þarna eru þrír ættliðir prent-
ara og bókamanna á Akur-
eyri. — Við borðið situr
Sigurður O. Björnsson, prent-
smiðjustjóri, og hjá honum
stendur Geir. sonur hans. en
á veggnum að baki þeim er
málverk af Oddi Björnssyni,
stofnanda prentsmiðiunnar,
sem enn ber nafn hans.
flokknum var Þyrnar eftir Þorstein Erlingsson, svo
að sama árið komu lit fyrstu bækur þeirra Þor-
steins og Einars Benediktssonar, 1897. Bækurnar
urðu tæplega tiu talsins í flokknum. En Oddur liélt
þó vissulega áfram bókaútgáfu eftir að þessu safni
lauk. Um tíma var útgáfa forlagsins mjög dræm, en
fyrir nokkrum árum kom aftur fjör í útgáfuna og
nú er hún langstærsta l)ókaútgáfa á Norðurlandi.
Stjórnendur hennar og prentsmiðjunnar eru sonur
stofnandans, Sigurður O. Björnsson og sonur hans,
Gcir S. Björnsson. Ég hitti Geir prentsmiðjustjóra
að máli í prentsmiðjunni á dögunum og spurði
hann undan og ofan af um sögu fyrirtækisins og
sagðist honum svo frá:
— Afi stundaði íslenzka bókaútgáfu í Kaup-
mannahöfn í fjögur ár og amma var honum til
aðstoðar með prófarkalestur. Þau fluttust heim ár-
ið 1901, og þá kom afi með vélar og stofnaði hér
prentsmiðju, sem var víst áreiðanlega sú full-
komnasta á landinu þá. Guðmundur Hannesson
læknir var aðalhvatamaður þess, að afi flyttist
heim, og svo fóru þeir að gefa út Norðurfara hér
á Akureyri, en Einar Hjörleifsson varð ritstjóri.
Fyrst var prentsmiðjan til húsa í Aðalstræti 17, í
Fjörunni, sem var aðalathafnasvæðið lengi. Þá var
flutt í Hafnarstræti 90 og verið þar unz þetta hús,
Hafnarstræti 88 B, var byggt lj'ðveldisárið 1944.
Fyrsta pressan var handsnúin hraðpressa, sem gat
prentað 1000 blöð á klukkustund og var notuð
eingöngu til ársins 1919, en það var ekki létt verk
að prenta með henni. Hún er enn til hér og raunar
enn notnð. Fyrst vann afi sem sveinn og tók tvo
lærlinga. Annar þeirra var Jakob Kristjánsson, sem
seinna kom mcð fyrstu setningarvélina til Reykja-
víkur. Sonur hans, Kristján, vinnur nú hér
sem teiknari bókaforlagsins. Einn prentarinn hefir
FRJÁLS VERZLUN
19