Frjáls verslun - 01.08.1962, Qupperneq 35
Sveinn Sæmundsson, blaðalulltrúi:
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
var stofnað á Akureyri 1937
Sveinn Sæmundsson
Oft er haft á orði, hve íslendingar sé fljótir að
tileinka sér nýjungar á ýmsum sviðum, jafnvel svo
fljótir, að þær eru stundum ekki fullreyndar og
bregðast því jafnvel vonum manna. Agætt dæmi
um viðbragðsflýti Islendinga að þessu leyti er hve
fljótt þeir áttuðu sig á því, að rétt væri að athuga
hvort fluglistin gæti ekki orðið okkur að gagni.
Fyrsta flugfélagið, sem hér var stofnað, var í heim-
inn borið 1919, og mundi það að líkindum vera elzta
flugfélag heims, ef því hefðu enzt lífdagar — má
þó vera að hollenzka flugfélagið, KLM, væri aðeins
eldra, því að það er nú aldursforseti flugfélaga
heimsins.
En fluglistin var ekki komin á ]>að stig, að lnin
gæti skotið hér rótum, ef nota má slíkt orðatiltæki
um það, sem er svo tengt bláloftunum, og ísland
var heldur ekki undir það búið að veita henni við-
töku. Örðugleikar þeir, sem urðu á. vegi félagsins,
voru því of miklir til þcss að á þeim yrði sigrazt,
])ótt dugnaður forráðamannanna væri mikill, og
bjartsýnin ekki síður, og félagið hætti eftir tveggja
sumra tilraunastarf.
En hugsun manna var enn vængjuð, og aðeins
fáeinum árum síðar — árið 1928 — var stofnað
annað flugfélag, og hafði það leitað samvinnu við
þýzka flugfélagið Lufthansa, sem var stjórnað af
mikilli atorku, og hélt þetta Flugfélag íslands nr. 2
uppi flugi í fjögur sumur, en varð þá að hætta
störfum. Varð félagið fyrir óhöppum, sem það réð
ekki við, því að flugvélar þess, sem voru sjóflug-
vélar, sukku í ofviðri, og auk þess lagðist hrammur
heimskreppunnar á starfsemi félagsins eins og ann-
arra.
Síðan varð hlé í sex ár, en þá var hleypt af
stokkunum þriðja flugfélaginu, sem hafði þó ekki
ísland í nafni sínu, því að það var stofnað á Akur-
eyri 3. júní 1937, og hét í öndverðu Flugfélag
Akureyrar.
Aðalhvatamaður að stofnun félagsins var Agnar
Ivofoed-Hansen núverandi flugmálastjóri. Hann
hafði lokið námi og prófum atvinnuflugmanna í
Danmörku og eftir heimkomuna tók hann strax
að vinna að flugmálum. Ekki var hlaupið að því
að stofna flugfélag, því að örlög hinna tveggja
voru mönnum í of fersku minni. Hins vegar stofn-
aði hann Svifflugfélagið og Flugmálafélagið, svo
nokkuð sé nefnt. Eftir að hafa gengið bónleiður
til búðar í Reykjavík hélt Agnar til Akureyrar,
þar sem nokkrir framámenn tóku máli hans vel og
þar var Flugfélagið stofnað, sem fyrr segir. Fyrstu
stjórn félagsins skipuðu Vilhjálmur Þór, formaður,
og meðstjórnendur Kristján Kristjánsson, forstjóri,
og Guðmundur Karl Pétursson, læknir. Félagið
ákvað strax að leita fyrir sér um kaup á fimm sæta
flugvél og var svo ráð fyrir gert, að flugferðir gætu
hafizt strax. Þetta varð þó ckki, vegna þess að
lengri tíma hafði tekið að útvega flugvélina cn menn
hugðu í fyrstu. Flugvélin kom til landsins í apríl
vorið eftir og 2. maí flaug hún fyrsta flug sitt frá
Reykjavík til Akureyrar.
Við margs konar erfiðleika var að etja á fyrstu
dögum flugsins. Flugþjónusta var þá engin innan-
lands. Radíóvitar, sem nú þykja sjálfsagðir, voru
heldur ekki fyrir hendi og veðurlýsingar, auk veð-
urfrétta veðurstofunnar, voru fengnar með viðtöl-
um við veðurglögga menn úti um land. Fyrsta árið
sem TF-ÖRN Waco-sjóflugvél Flugfélags Akureyr-
ar var her í förum, flutti hún 770 farþega. Vorið
1939 lét Agnar Kofoed-Hansen af störfum hjá félag-
inu, en við tók Örn Ó. Johnson, sem ])á gerðist
eini flugmaður félagsins og forstjóri og síðar talda
starfinu hefir hann gegnt síðan. TF-ÖRN eða Örn-
inn, eins og flugvélin var kölluð, flaug víða um
land og flutti farþega og póst. Enginn flugvöllur
var þá til á landinu, enda var flugvélin höfð á
flotholtum. Snemma árs 1940 var félagið endur-
FRJÁLS V lillZLUN
35