Frjáls verslun - 01.08.1962, Side 37
Önnur
skrúfuþota
F. í., Hrímfaxi
á Reykja-
víkurflugvelli
vélin, sem þar lenti eftir stríð. Alls voru fluttir 56
farþegar milli landa þetta sumar. í ljós kom, að
sjóflugvél var ekki heppileg lil þessara flugferða.
T. d. þurfti flugvélin í síðustu ferð sinni að bíða
nokkra daga eftir heppilegu veðri til flugtaks í
Kaupmannahöfn vegna undiröldu á Eyrarsundi.
Vorið 1946 samdi Flugfélag íslands við Scottish
Airlines um leigu á tveim Liberator-flugvélum til
millilandaflugs. Þessi Iiáttur hélzt í tvö ár og var
flogið til Prestvíkur í Skotlandi og Kaupmanna-
hafnar. Elugfélagið eígnaðist um þetta leyti þriðja
Katalínaflugbát sinn og árið 1946 eignaðist það
einnig fyrstu Dakota-flugvél sína.
Innanlandsflugið jókst jafnt og þétt og flogið
var til flestra stærri kaupstaða á landinu. Félagið
hafði og stefnt að því að eignast eigin flugvél til
millilandaflugs. Slíkt fyrirtæjci var fjárfrekt og
stefnt skyldi að því að fá góða og trausta flugvél.
Eimskipafélag íslands hljóp undir bagga og veitti
Flugfélaginu drengilega aðstoð í þessu máli. Hinn
8. júlí 1948 koin flugvélin svo til landsins og hlaut
nafnið „Gullfaxi“. Millilandaflug Flugfélags íslands
var nú framkvæmt með eigin flugvél og af íslenzk-
um áhöfnum. Hafnar voru ferðir til fleiri staða er-
lendis. Næsta viðbót á millilandaáætluninni varð
Osló og stuttu síðar London. Árið 1950 varð merkis-
ár í sögu Flugfélags Islands að tvennu leyti. Það
ár hófust Grænlandsferðirnar og félagið gekk í Al-
þjóðasamband flugfélaga, IATA. Fyrsta Grænlands-
flugið var farið 15. júlí fyrir rannsóknarleiðangur
dr. Lauge Koehs, en fimmtán menn úr lciðangri
hans voru fluttir til Ellaeyjar í Óskarsfirði á norð-
austurströnd Grænlands. Sumarið eftir hófust flug-
ferðir fyrir leiðangur Frakkans Paul Emile Victors
og 1952 byrjaði Flugfélagið flutninga fyrir ýmsa
aðila sem atvinnurekstur hafa í Grænlandi o. fl.
Arið 1951 hættu Loftleiðir, sem um sjö ára skeið
lúifðu tekið þátt í innanlandsflugi, þeirri starfsemi
og hefir Flugfélag íslands síðan eitt annazt allt
reglubundið innanlandsflug hér á landi. Er hér var
komið mátti segja að Flugfélagið hefði slitið barns-
skónum. Flutningar jukust jafnt og þétt og við-
komustöðum fjölgaði.
Hlutur Flugfélagsins í atvinnusögu landsins er
þáttur út af fyrir sig. Auk þess að flytja vertíðar-
fólk, síldarfólk o. fl. með skjótum hætti landshorn-
anna á milli, tók það að sér hlutverk, sem vakti
mikla athygli jafnvel langt út fyrir landsteinana.
Það var þegar fjárflutningarnir miklu úr Öræfum
áttu sér stað. Hundruð líflamba voru flutt frá Ör-
æfum upp í Borgarfjörð til sinna nýju heimkynna.
Nokkru áður hafði loftbrúin til Öræfa, sem síðan
hefir verið starfrækt hvert haust, einnig verið opn-
uð. Innanlandsflugið krafðist. aukins flugvélakosts,
FRJALS VERZLUN
87