Frjáls verslun - 01.03.1968, Blaðsíða 27
FRJALS VERZLUN
27
Þetta er forsetasetrið að Bessastöðum á Álftanesi. Enn veit enginn með vissu, hver ráða mun 'þar eftir
forsetakosningarnar í júní.
flokksmanna, og má telja víst, að
sumir þeirra kjósi hann ekki.
Þessi hópur er hins vegar fámenn-
ari en margir ætla, en einnig má
búast við, að „erfðaríkið“ fari í
taugarnar á mörgum almennum
kjósanda í Reykjavík, og þaðkann
að reynast Gunnari skeinuhætt.
Kristján Eldjárn mun tvímæla-
laust hljóta sitt meginfylgi hjá
kjósendum Framsóknarflokksins
og Alþýðubandalagsins, en hann
mun einnig eiga verulegan stuðn-
ing í Alþýðuflokknum, og nokk-
ur hópur kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins mun greiða honum at-
kvæði.
En á hverju eiga kjósendur að
byggja val sitt milli þessara
tveggja manna? Það val hlýtur
fyrst og fremst að byggjast á því,
hverjar kröfur forsetaembættið
gerir til þess manns, sem þvígegn-
ir. Yfirleitt munu landsmenn óska
þess, að forsetinn njóti virðingar
og trausts inn á við og teljist góð-
ur og glæsilegur fulltrúi þjóðar
sinnar á erlendum vettvangi. Báð-
ir frambjóðendur munu að flestra
dómi fullnægja þessu skilyrði. Að
vísu má vera, að sumir telji meiri
hættu á tildri og stássheitum að
Bessastöðum, ef Gunnar Thor-
oddsen ræður þar ríkjum, en í
höfuðatriðum munu flestir sam-
mála um, að báðir frambjóðendur
hafi hina ytri kosti til að bera.
enda er forsetaembættið yfir-
leitt ekki annað en valdalaus veg-
semd. Hins vegar skapast einstaka
sinnum þær aðstæður við stjórn-
armyndanir, að forseti getur raun-
verulega haft úrslitaáhrif ástjórn-
málaþróunina í landinu. Það gerð-
ist t. d. í desember 1958 eftir fall
vinstri stjórnarinnar, þegar herra
Ásgeir Ásgeirsson fól Emil Jóns-
syni myndun minnihlutastjórnar
á sama tíma og ýmsar aðrar til-
raunir voru gerðar að tjaldabaki.
í einu vetfangi gaf forsetinn Al-
þýðuflokknum nýtt líf og kom í
veg fyrir nýja vinstri samfylkingu
á Alþingi.
Þegar slíka atburði ber að hönd-
um, þarf forseti íslands að hafa
til að bera stjórnmálalegareynslu,
þekkingu á innviðum stjórnmála-
flokkanna og náin kynni af helztu
forustumönnum þeirra. Á þessu
sviði hefur Gunnar Thoroddsen
tvímælalaust vinninginn fram yf-
ir Kristján Eldjárn, sem hefur
litla sem enga reynslu af stjórn-
málum.
Hvað gerist, ef Kristján Eld-
járn fellur? Ekkert. Hann snýr
afturtil fyrri starfa hjáÞjóðminja-
safninu. Spurning dagsins er hins
vegar sú, hvað gerast mundi, ef
Gunnar Thoroddsen félli. Það gæti
orðið afdrifaríkur, pólitískur at-