Frjáls verslun - 01.03.1968, Side 56
56
FRJÁLS VERZLUN
að lýðveldi, og yrði frá bví gengið,
væri engin leið til að snúa aftur.
Hermenn Rhódesíustjórnar berjast
enn við þúsundir skæruliða frá ná-
grannaríkinu Zambíu, en skærulið-
arnir fóru yfir Karibavatn, sem er
á landamærum Zambíu og Rhódesíu,
aðfararnótt 19. marz. Megintilgang-
ur þeirra var sá að hefna aftöku
blökkumannanna fimm í Salisbury.
Barizt er mestmegnis i Zambesi-daln-
um, þar sem landið er vaxið þéttum
frumskógi og mjög erfitt yfirferðar.
VESTUR-
ÞÝZKALAND
Innanríkisráðherra V.-Þýzkalands,
Paul Luecke, sem er varaformaður
Kristilega demókrataflokksins, af-
henti Kiesinger kanzlara lausnar-
beiðni sína 27. marz i mótmæiaskyni
við afstöðu sósíaldemókrata tii frum-
varps um endurbætur á kosningalög-
gjöf landsins, en sósíaldemókratar og
kristilegir demókratar mynda sam-
steypustjórn þá, sem fer með völd í
V.-Þýzkalandi. Luecke dró síðar af-
sögn sína til baka, er honum hafði
verið heitið því, að reynt skyldi að
finna samkomulagsgrundvöll fyrir
sjónarmið hans.
ALÞJÓÐA-
GULLSJÓDURINN
Þjóðirnar sjö, sem standa að Al-
þjóðagullsjóðnum, komust að því
samkomulagi 17. marz, að tvenns
konar verð á gulli skyldi gilda í
framtíðinni. Samkomulag þetta var
gert til að koma í veg fyrir óhófleg
gullkaup gjaldeyrisbraskara. Ákveð-
ið var að stöðva afgreiðslu á gulli til
gullmarkaðarins í London og allra
annarra gullmarkaða. Annars vegar
verða opinberar gullsölur á milli
þessara landa, þar sem verðið á einni
únsu gulls verður 35 Bandaríkjadalir,
eins og áður, en hins vegar verður
annar gullmarkaður, sem er frjáls og
þar ákveðst gullverðið af framboði
og eftirspurn, en aðildarríki gull-
sjóðsins munu ekki bjóða fram gull
á þessum markaði.
Ákvörðun þessi var tekin á fundi
aðalbankastjóra seðlabanka þeirra sjö
ríkja, sem standa að Alþjóðagull-
sjóðnum, og fór þessi fundur fram í
Washington. Ríkin eru Bandaríkin,
Belgía, V.-Þýzkaland, Italía, Holland.
Sviss og Bretland.
Ásókn spákaupmanna í gull á rót
sína að rekja til gengisfellingar sterl-
ingspundsins í nóvember í fyrra.
Gengisfellingin var mikið áfall fyrir
traust manna á peningakerfi heims-
ins, en það er grundvallað á ákveðnu
sambandi milli pundsins, dollarsins og
gullsins. Er pundið var fellt, var doll-
arinn óvarinn fyrir spákaupmennsku,
sem jókst vegna minnkandi trausts
á pappírsmynt. Margir efuðust um, að
Bandaríkjunum yrði kleift að halda
dollarnum á núverandi gengi vegna
minnkandi gullforða og vaxandi
greiðsluhalla. Spákaupmenn héldu,
að ef dollarinn yrði felldur, myndi
gull hækka mjög í verði, og síðustu
tvo mánuði fyrra árs minnkaði gull-
forði aðildarlanda Alþjóðagullsjcðs-
ins um 1500 millj. dollara. í byrjun
marzmánaðar jókst orðrómurinn um
gengisfellingu dollarsins, og öngþveiti
varð á gullmarkaðinum í London 15.
marz, er gullsalan náði 100 tonnum.
En með fyrrnefndum aðgerðum hafa
„gulllöndin" stöðvað gullbraskið og
gert vonir spákaupmannanna að
engu. Til frekara öryggis voru for-
vextir í Bandaríkjunum hækkaðir úr
4,5% í 5%. Vert er að geta þess, að
þessar ráðstafanir hafa lítil áhrif á
gjaldeyrismál íslendinga.
ZANUSSI HEIMILISTÆKI
Söluumboð fyrir hin vinsælu
heimilistæki, svo sem
sjálfvirkar
ÞVOTTAVÉLAR
KÆLISKÁPA
UPPÞVOTTAVÉLAR
FRYSTIKISTUR
0G
FRYSTIBOX
Getum einnig útvegað úrvalstæki
til veitinga- og gistihúsa.
VERZLUNIN
LUKTIN HF.
SNORRABRAUT 44
SÍMAR: 16242-15470 - PÓSTHÓLF 119