Frjáls verslun - 01.03.1968, Page 57
FRJÁLS VERZLUM
57
FERÐAMÁL
FLEIRI FARA TIL ÚTLANDA EN ÁÐUR
Gengisfelling, verðhækkanir og
alls konar óáran hafa dunið yfir
ísland nú að undanförnu, enda
stynja menn þunglega undir byrð-
unum. Þykir fólki mjög hafa
versnað sinn hagur, og láta jafn-
vel sumir í það skína, að þeir hafi
ekki efni á að lifa í þessu
blessaða landi okkar. Þetta er
sjálfsagt rétt í sumum tilfellum,
en meirihluti íslendinga virðist þó
geta lifað góðu lífi áfram. Sem
dæmi um það má nefna, að aldrei
hefur verið jafnmikið um fyrir-
spurnir og pantanir hjá ferða-
skrifstofum þeim, sem flytja menn
til framandi landa.
Það er nú kannski reyndar lé-
legur mælikvarði, því að það virð-
ist vera mun ódýrara að fara í
þriggja vikna ferð til Spánar en
að kúldrast hér í kulda og trekki
í þrjár vikur af sumarleyfinu.
Frjáls verzlun hafði samband
við nokkrar ferðaskrifstofur og
spurðist fyrir um útlitið á þessu
ári.
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, sagði, að eftirspurn-
in hefði aldrei verið meiri. Hann
getur nú boðið mönnum að dvelj-
ast á Spáni við fagra baðströnd
fyrir þúsund krónur á dag. Er þá
reiknað með fullu fæði, gistingu á
lúxushóteli og ferðum fram og til
baka.
Hann sagði, að gengisfellingin
í haust hefði valdið því, að flug-
fargjöld hækkuðu um allt að því
þriðjung. Verðlag í mörgum
Evrópulöndum hækkaði samsvar-
andi, ef miðað er við gengi ís-
lenzku krónunnar. Má því búast
við minnkandi straumi íslenzkra
ferðamanna til þeirra landa, sem
hingað til hafa verið fastir við-
komustaðir, eins og t. d. Kaup-
mannahöfn, þar sem verðlag er
orðið mjög hátt. Á hinn bóginn er
þess að vænta, að menn leggi æ
meira leið sína til Bretlands og
Spánar, en bæði þessi lönd lækk-
uðu gengið allmikið í haust, og
almennar hækkanir þar hafa ekki
orðið eins miklar og víða annars
staðar, ef miðað er við gengi ís-
lenzku krónunnar. Auk þess hef-
ur verðstöðvun verið sett á alla
þjónustu, sem að ferðamönnum
lýtur, á Spáni, og hafa því svo til
engar hækkanir orðið þar. Á
Spáni hefur líka verið lögð mikil
áherzla á að halda verðlagi stöð-
ugu, og hafa ekki orðið teljandi
breytingar á hótelverði síðastliðin
fimm ár.
Verðlag í Bretlandi hefur óneit-
anlega hækkað nokkuð, en brezk-
ar ferðaskrifstofur hafa ekki
hækkað verð á ferðum sínum suð-
ur á bóginn, og eru þær því orðn-
ar mun hagkvæmari en ferðir
með dönskum ferðaskrifstofum,
sem íslendingar hafa skipt mikið
við á undanförnum árum. Útsýn
hefur umboð fyrir tvær stærstu
ferðaskrifstofur Bretlands, Riviera
og Skytours, og selur í ferðir
þeirra, auk þess sem hún skipu-
leggur sínar eigin eins og undan-
farin ár.
Ingólfur segir verð á Spánar-
ferðum hafa haldizt svo til óbreytt.
Það er leigufluginu að þakka, en
Útsýn leigir íslenzkar flugvélar til
London og svo aðrar áfram í
samvinnu við brezkt fyrirtæki.
Flugkostnaðurinn verður þannig
ekki nema helmingur af verði
venjulegs farmiða. Síðastliðin
þrjú ár hefur ferðaskrifstofan sí-
fellt aukið leiguflug, og í sumar
verður haldið uppi ferðum hálfs-
mánaðarlega til London og þaðan
farið áfram í skipulagðar ferðir.
En Útsýn býður upp á fleiri
lönd en Spán og önnur Miðjarðar-
hafslönd. Hún greiðir einnig götu
þeirra, sem vilja fara til ítalíu og
vera í Róm og Sorrento viðNapólí-
flóa eða þá í Alassio, sem er á
ítölsku blómaströndinni. Þá eru
einnig ferðir til Grikklands, þar
sem dvalið er á baðstað skammt
frá Aþenu og farið í heimsóknir
á foi'na sögustaði, einnig siglt um
Adríahaf meðfram strönd Júgó-
slavíu. Skandinavíu-ogMiðevrópu-