Frjáls verslun - 01.04.1970, Síða 10
1 □
FRJAL5 VERZLUN
Hrífum íbúðabyijgmgar af
handverksstiginu
ng gerum þær 1 raun að
öflugum nútímaiðnaði
Inngangur ritstjórnar að greinflokki um húsnœðismál og byggingaiðnað.
Framkvæmdir Byggingaáætlunar í Breiðholti í Keykjavík hafa
verið mjög umdcildar. Þær hafa þó sannað, að unnt er að ná stór-
bættum árangri með samræmduin aðgerðum í skipulagningu og
fjármögnun. Ef byggingariðnaðinum væri gert kleift að starfa á
hliðstæðum grundvelli, myndi hann án efa ná miklu lengra.
O Þegar þér kaupið bifreið,
hvort heldur er til einkanota
eða atvinnureksturs, þá kaupið
þér hana tilbúna. Bifreið er
dýrt tæki. En hafið þér hug-
leitt, hvað hún myndi kosta,
ef !þér keyptuð hana í þúsund
pörtum og settuð hana sjálfir
saman með skrúfjárninu yðar
og skiptilyklinum, af takmark-
aðri þekkingu og misjafnri
handlagni, jafnvel þótt þér ætt-
uð kost á aðstoð sérfræðinga
við það allra erfiðasta? Og
hversu skyldi slíkt tæki reyn-
ast og endast í hlutverki sínu
á móts við bifreið frá tæknibú-
inni og vélvæddri bifreiðaverk-
smiðju með áralanga þróun að
baki? Vitaskuld éru þetta frá-
leitar hugleiðingar. Það væri
með ólíkindum og fádæmum, ef
yður kæmi til hugar að stofna
til keppni við Ford eða General
Motors um smíði þeirrar bif-
reiðar, sem hugur yðar og hag-
ur stendur til.
O En vendum þá okkar
kvæði í kross.
O Eigin íbúð er naumast
minna keppikefli fyrir yður en
bifreiðin, líklega mun meira.
Hún kostar a. m. k. fimm sinn-
um meira en bifreiðin. Og ekki
þarf íbúðin að standast minni
þolraunir. Hvernig farið þér
svo að í þessu efni? Gangið þér
inn í verzlun, eins og þegar þér
ætlið að kaupa bifreið, festið
kaup á íbúð, og notfærið yður
þannig reynzlu, þekkingu og