Frjáls verslun - 01.04.1970, Blaðsíða 26
26
FRJALS VERZLUN
frá árinu 1968, mundi þurfa að
byggja um 1600 íbúðir þeirra
vegna á árunum 1969—1974 og
um 1800 á árunum 1975—1980.
Sé hins vegar gert ráð fyrir
því, að þeim einhleypingum
fjölgi, sem hafa vilja umráð
yfir íbúð, hækka þessar tölur.
Sé gert ráð fyrir, að hlutfall
einhleypinga með íbúð hækki
um 1% á ári á öllu tímabilinu,
yrði að ljúka smíði 2300 íbúða
til viðbótar á fyrra tímabilinu,
og um 2900 íbúða á síðara tíma-
bilinu. Yrði þá hlutfall ein-
hleypinga með íbúð komið upp
í 43,7% árið 1980. Með því að
taka þennan seinni kost sem
hámark, verður að telja, að
allvel sé séð fyrir óvissu í þess-
um hugmyndum.
ÍBÚÐIR TEKNAR ÚR
NOTKUN
Samkvæmt reynzlu áranna
1950—-1960 eru um 0,6% íbúða
árlega teknar úr notkun af
ýmsum ástæðum. Því miður
eru engar nýrri tölur fyrirliggj-
andi. Þar sem meginstofn íbúð-
arhúsnæðis er nú tiltölulega
nýr, verður að telja, að ekki sé
vanáætlað, ef reiknað er með
þessu hlutfalli í framtíðinni.
Yrði þá að gera ráð fyrir að
1900 íbúðir yrðu teknar úr
notkun á fyrra tímabilinu og
um 2300 á því síðara.
ÞÖRF FYRIR NÝJAR ÍBÚÐIR
FRAM TIL 1980 f HEILD
Séu ofangreindar niðurstöð-
ur teknar saman, kemur í Ijós,
að þörfina fyrir nýjar íbúðir
megi í heild áætla eftirfarandi:
ÁLAFOSS
KYNNIR
ULLARGÓLFTEPPI
OG
ULLARMERKIÐ
Þetta er merki fyrir hreina, nýja ull.Við framleiðum eingöngu gólfteppi úr ull.ý-i-íMÉ
Meira að segja úr íslenzkri ull. . C.V Og fulltrúar The International Wool Sekretariat
hafa komið til okkar í verksmiðjuna. Rannsakað ullina. Rannsakað teppin og
heimilað okkur að merkja gólfteppin hinu alþjóðlega gæðamerki, Ullarmerkinu:
Eftirlíkingar eru margar. Þær heita ýmsum, fínum erlenduin nöfnum, en hafa eitt
íslenzkt samheiti: gerviefni. Engin framleiðandi kallar þau ull.
Ekki einu sinni ullarlíki. Það yrði aldrei þolað. Ull vex ekki á efnarannsóknarstofum.
Hún vex á sauðkindinni. g||||& Kaupið örugga gæðavöru. Kaupið Álafoss gólfteppi!
ÁLAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2. REYKJAVIK, SlM113404
umboðsmenn um allt land