Frjáls verslun - 01.04.1970, Page 51
FRJALS VERZLUNT
43
BYGGINGA-
RANNSÓKNIR
Grein eftir Harald Ásgeirsson verkfrœðing, forstjóra Rann-
sóknastofnunar byggingaiðnaðarins, um verkefni
stofnunarinnar og ransóknaþörf.
Inngangur.
Upphaf allra framkvæmda
er hugmyndir. Framkvæmdirn-
ar sjálfar eru mælikvarði á það
hversu góðar og vel útfærðar
hugmyndirnar hafa verið. Hug-
myndir eru alltaf misskýrar og
jafnvel hjá þeim snjöllustu
verða þær að fá tóm til þess að
þróast í það form, sem hentug-
ast er. Þróunin er margvísleg
og maðurinn býr yfir fjöl-
breyttri tækni við að koma
þersum hugmyndum á fram-
færi við aðra bæði í máli og
myndum. í rauninni er hugar-
orkan mesta orkulind hverrar
þjóðar. Aflvakinn, sem leysir
úr læðingi oft duldar náttúru-
auðiindir. Snar þáttur í þróun
allra iiugmynda er gjarnan upp-
lýsingaleit, þ. e. rannsóknir á
möguleikum og eiginleikum,
sem eru undirstaða að hag-
kvæmni hugmyndanna.
Markmið byggingarannsókna
er að leiða í ljós sannindi, ann-
ars vegar um hagkvæmar leið-
ir til þess að byggja vönduð og
ódýr mannvirki og hins vegar
að tryggja það að þau verði sem
varanlegust og eftirsóknar-
verðust eign hvers byggðarlags.
Rannsóknirnar sjálfar eru öfl-
ugt tæki við að leiða í ljós þessi
sannindi. Þeim má líkja við rat-
sjá, þær eru leiðarvísir bygg-
ingariðnaðarins í hverju landi.
Oft er hægt að meta gildi hug-
myndar og má t. d. nota eftir-
farandi einfalda líkingu G =
Á • L
pj þar sem: G taknar gildi
hugmyndar, Á eygðan ágóða,
L iíkur fyrir árangri og R rann-
sóknakostnað. Gildið í líking-
unni er aðeins talnasttuðull og
ljóst að því stærra sem það er,
því meiri ástæða er til að leggja
rækt við hugmyndina.
Þessa einföldu líkingu má t.
d. nota til þess að kanna hagn-
aðarvonina, sem tengd er því
að reka byggingarannsóknir í
landinu og þá hversu mikla
starfsemi.
Ef gert er ráð fyrir að eðlileg
fjármunafesting í byggingar-
iðnaði landsmanna sé 5 milljarð-
ar króna og að ágóðavonin af
rannsóknum fyrir þennan iðn-
að t. d. í hugsaðri lækkun
byggingarkostnaðar, sem næmi
10%, og að líkurnar fyrir ár-
angri séu aðeins 50% og að gild-
istala sé valin 10, þá fæct R -=
Á • L __ 500 millj. • 0.50
G 10
25 millj. króna. Segja má með
réttu, að þessi framsetning sé
laus í reipunum og að of mörg
„ef“ séu í forsendunum og gætu
raunar verið fleiri. Áhrif rann-
sóknanna eru tiltölulega varan-
leg og þess vegna mætti ætla
að jafnvel tvöfeldi eða jafnvel
margfeldi af þessari tölu gæti
verið hagkvæm fjárfesting í
byggingarannsóknum fyrir um-
svifamikinn byggingariðnað.
Skilgreiningar af þessu tagi
og margvíslegar aðrar sannamr
fyrir því að fjárfesting í rann-
sóknum sé arðbær hafa orðið
til þess að á undanförnum ára-
tugum hafa framlög til rann-
sókna víðast margfaldast, og' nu
er orðið algengt að 3—5% af
framleiðslukostnaði sé lagt í
rannsóknir.
Hitt er svo jafnljóst að ekki
er nægjanlegt að auka fjár-
magn til rannsóknanna. Algjör
forsenda fyrir árangri af rann-
sóknum er að rannsóknakraft-
arnir séu starfi sínu vaxnir, að
Hús Ra,nnsóknastofnunar byggingariðnaðarins á Keldnaholti.