Frjáls verslun - 01.04.1970, Qupperneq 58
SD
FRJÁLS VERZLUNf
GÓLFTEX
Terrazzo plast
Leiðbeiningar um notkun
Gólftex er slitsterkt plast-
efni, sem hægt er að leggja á
gólf, jafnt í verksmiðjuhúsum
sem heimahúsum (ganga,
þvottahús, stigahús, bílskúra,
vinnusali í frystihúsum, skrif-
stofuhúsnæði o. s. frv.).
Efnið er hægt að leggja í
ýmsum þykktum, og það hefur
frábæra viðloðun á tré, stein og
járn. Það þolir mjög vel hvers
konar kemikalíur, svo sem
sýru og lút.
Ný steingólf þurfa að fá að
standa við herbergishita í
minnst 2—3 mánuði, áður en
lagt er á þau. í flestum tilfell-
um er nauðsynlegt að sýru-þvo
þessi gólf, til þess að eyða lausu
sementslagi, sem oft vill mynd-
ast í efsta lagi steypunnar, og
eins þar sem gólf eru mjög
slétt (stáldregin), hjálpar sýru-
þvottur til þess að gefa betri
viðloðun. Nota skal saltsýru
40% og blanda hana með vatni
í hlutföllum 1:8. Gólfið þarf að
skola vel og kústa eftir þvott-
inn, en láta síðan þorna. Ef
gólfin hafa verið máluð áður,
þarf að fjarlægja vandlega allt,
sem laust er, en gera málning-
una, sem eftir situr, matta með
því að rífa hana með smergel-
pappír (nota vélar, ef hægt er),
og þvo síðan vel. Strax og gólf-
in eru byrjuð að þorna skal
gera við sprungur með því að
hræra saman Alabastini og
Múrtexi og bera í sprungurnar.
Steingólf og aðra gljúpa fleti
skal grunna með sérstökum
Gólftexgrunni, sem er fljótur
að þorna, og varast ber að láta
hann standa lengur en 24 tíma,
áður en sjálft Gólftexið er sett
á.
Gólftexið þarf herði svo að
þornun eigi sér stað. Honum er
blandað í hlutföllunum 1 rúm-
mál herðir á móti 3 rúmmálum
Gólftex. Gæta skal þess að
nota ekki meira magn af herði
en að ofan getur. Mjög áríðandi
er að hræra þessum efnum vel
saman og fyrirbyggja að ó-
blandað efni liggi eftir í lögg-
um og meðfram hliðum blönd-
unar-ílátsins. Ef illa er blandað
saman koma fram blettir, sem
ekki harðna.
Gólftexinu er hellt á gólfið
og rakað út með sköfum eða
stálbrettum, sem skilja hæfi-
lega þykkt eftir á gólfinu, (frá
0,7—2,0 mm, eftir því sem
henta þykir). Sköfurnar geta
annaðhvort verið tenntar líkt
og dúkalímspaði, eða þá gerð-
ar úr 20—30 cm. löngu blaði
með tveim pinnum, og ræður
þá lengd þeirra þykktinni.
Gólftexið flýtur svo vel út, að
förin eftir tennur og pinna
hverfa. Varast ber að blanda
stærri lögun af gólftexi og
herði en svo, að takast megi að
koma henni á flötinn innan 30
■—40 mínútna, því þá byrjar
blandan að stirðna.
Meðan gólftexið er blautt má
strá út í það plastflögum af
ýmsum litum, sem gefa gólfun-