Frjáls verslun - 01.04.1970, Side 74
66
FRJALS VERZLUN
MIKILLA
UMBÚTA
ER ÞÖRF
frá
ritstjórn
Hér á undan hafa ýmsir fróðir menn um byggingarmál
gerl grein fyrir stöðu þeirra mála og áliti sínu á framtíð
þeirra. Það kemur fram, að þrátt fyrir framfarir, eru hús-
liyggingar okkar Islendinga enn á handverksstiginu, og
má rekja það gegnum alla þætti þeirra. Ljóst má vera,
eins og sumir greinarhöfunda taka fram, að bættur árang-
ur í byggingarmálum næst ekki, nema horfið verði frá
þeim vinnubrögðum, sem tíðkazt hafa, í öllum meginefn-
um, og ekki nema beitt verði samræmdum aðgerðum til
þess að fullnýta alla möguleika. Meginmarkmiðin eru full-
nægjandi húsnæðisframboð við hæfilegu verði, samfara
vöndun á sviði skipulagningar og framkvæmda, sem
tryggi varanleg, hagkvæm not af húsnæðinu. Þessum
markniiðum verður að ná, enda er mikið í húfi fyrir þjóð-
arheildina, og ekki sízt unga fólkið, sem á að erfa landið,
mannvirkin og uppbygginguna.
I lok Alþingis nú í vor, voru samþykkt ný lög um Hús-
næðismálastofnun ríkisins. .1 meðförum þingmanna voru
gerðar nokkrar hreytingar á upphaflega frumvarpinu,
m. a. var felld niður þjóðnýting lífeyrissjóðanna að fjórð-
ungi, og aukin áherzla lögð á markvissa stefnu í þágu
byggingariðnaðarins. Þó skortir enn mikið á, að fyrir
þessum málum hafi verið séð til frambúðar, svo öruggt
megi telja. Engu að síður er hlutverk Húsnæðismálastofn-
unarinnar og húsnæðismálastjórnar hið mikilvægasta, eins
og á stendur, og veltur nú í rauninni allt á því, hver
framkvæmdin verður í höndum þessara aðila. Spurningin
er sú, hvort framkvæmdin verður fagleg í staðinn fyrír þá
pólitízku forsjá, sem einkennt hefur yfirstjórn húsnæðis-
mála hingað til. Verður að vinna að því öllum árum, og
jafnframt móta frekari umhætur og stefna að því, að
byggingariðnaðinum verði á næstu misserum búin aðstaða
til þess að verða raunverulegur iðnaður með möguleika
til þess að nýta öll þau margþættu tækifæri til framfara,
sem eru fyrir hendi. Þetta er mikilvægt verkefni, eins og
glöggt kemur fram í greinunum hér að framan. Miklir
fjármunir og mikil verðmæti eru í húfi. Húsnæðismálin
eru einhver mikilsverðustu mál fyrir hvem einasta borg-
ara og þjóðina í heild.